„Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk“ Andri Broddason skrifar 26. september 2026 18:40 Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði Íslands, veit að íslenska liðið getur gert betur í næsta leik gegn Lúxemborg. Anton/Vísir Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði Íslands, var svekktur eftir 1-1 jafntefli við Eistland í fyrsta leik Íslands í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar. Liðið náði ekki að skapa sér jafn mörg færi og það hefði viljað. „
Mér fannst við halda vel í boltann en síðustu sendingar og snertingar fyrir framan markið voru það sem vantaði og við áttum að skora fleiri í dag. Við áttum að nýta færin okkar betur og við þurfum að skapa okkur fleiri færi.“ Bæði markaskorarinn Andri Lucas Guðjohnsen og Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, voru óánægðir með hversu fá færi Ísland náði að skapa sér. Orri Steinn var sammála og fékk lítið pláss inni í teig andstæðingsins í leiknum. „Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk og við gerðum frábærlega í fyrsta markinu. Þeir lágu þétt og það voru margir í teignum sem er ástæðan fyrir því að erfitt var að skapa sér færi. Þeir gerðu okkur erfitt fyrir þar sem leikurinn var hægur sem hentaði þeim betur. Hákon Rafn Valdimarsson var í marki Íslands í dag og átti hann frábæran leik. Hann varði nokkur dauðafæri og þar á meðal eina vítaspyrnu. Orri Steinn var ánægður með innkomu hans í liðið og þakklátur fyrir vörslur hans. Hákon Rafn Valdimarsson bjargaði íslenska liðinu með frábærum vörslum.Anton/Vísir „Hákon Rafn var stórkostlegur í dag og við getum þakkað honum að það fór ekki verr. Hann er frábær markmaður og þrátt fyrir að það sé ekki mikið að gera þá er hann alltaf á tánum og hjálpar okkur þegar kallið kemur.“ Næsti leikur Íslands er á þriðjudaginn gegn Lúxemborg og er mikið af hlutum sem liðið þarf að bæta fyrir þann leik. Orri Steinn er meðvitaður um það og er staðráðinn í að íslenska liðið komi tvíeflt í þann leik. „Við þurfum að vera skarpari á síðasta þriðjungi. Ekki gera sömu mistök og við gerðum varnarlega með því að gefa víti og dauðafæri. Við vitum að við getum gert betur en þetta og ég veit að við lærum af þessum leik og gerum betur næst.“
Fótbolti Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Sjá meira