Blaðamannafundi Heimis frestað og von á yfirlýsingu Aron Guðmundsson skrifar 26. september 2026 08:50 Heimir þakkar stuðningsmönnum Írlands eftir leik gegn Kósóvó á dögunum Vísir/Getty Blaðamannafundi Írska landsliðsins, þar sem landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson átti meðal annars að sitja fyrir leik liðsins gegn Ísrael á morgun hefur verið frestað og von er á yfirlýsingu frá írska landsliðinu.
Frá þessu greinir írski ríkismiðillinn RTE núna í morgun en mikið fjaðrafok hefur verið í aðdraganda leiksins og pressað á írska landsliðið að sniðganga leikinn sökum stöðunnar á Gaza. „Fimmtán mínútum áður en að fundurinn átti að hefjast voru blaðamenn á svæðinu látnir vita af þvíað honum yrði frestað,“ segir í frétt RTE. Búist sé við því að blaðamannafundurinn fari fram seinna í dag en að í millitíðinni muni berast yfirlýsing frá leikmönnum írska landsliðsins. Ísraelar hafa beint spjótum sínum að Heimi í aðdraganda þessa fyrri leiks liðanna sem fram fer á hlutlausum velli í Debrecen í Ungverjalandi á morgun í Þjóðadeild UEFA. Heimir hefur áður sagt frá því að leikmönnum írska landsliðsins þyki óþægilegt að vera í þessari stöðu. Ummæli hans á blaðamannafundi á dögunum féllu ekki vel í kramið hjá forráðamönnum ísraelska knattspyrnusambandsins. „Við erum ekki að spila með þjóðarmorði, við erum að spila gegn þjóðarmorði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael.,“ sagði Heimir en þau ummæli drógu dilk á eftir sér. Harðorð yfirlýsing knattspyrnusambands Ísrael fylgdi og var Heimir sakaður um „fáfræði, hræsni og heimsku“. Írska knattspyrnusambandið hefur sætt mikilli gagnrýni heima fyrir vegna ákvörðunarinnar að spila komandi leiki við Ísrael. Írar spila báða leikina við Ísrael í komandi glugga; í Ungverjalandi þann 27. september (heimaleikur Ísraels) og í Serbíu þann 4. október (heimaleikur Íra).
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Sjá meira