Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Toyota á Íslandsi 28. september 2026 08:55 Endurnýjaður sýningarsalur Toyota í Kauptúni tengir saman móttöku, ráðgjöf, stafræna miðlun og kynningu á bílum og þjónustu. Myndir/Ragnar Th. Sigurðsson. Eftir rúmlega hálfs árs framkvæmdir hefur Toyota Kauptúni tekið miklum stakkaskiptum. Jón Óskar Halldórsson, framkvæmdastjóri sölusviðs, segir breytingarnar allar miða að því að bæta þjónustu og upplifun viðskiptavina.
Þegar gestir ganga nú inn blasir við þeim breytt umhverfi: opnara skipulag, hlýlegt efnisval, skýrari merkingar og ný leið til að kynna bíla og þjónustu Toyota. Breytingarnar ná þó lengra en til innréttinga og útlits. Jón Óskar Halldórsson er framkvæmdastjóri sölusviðs Toyota Kauptúni. „Allt sem við höfum gert er hugsað með það fyrir augum að bæta þjónustu okkar við viðskiptavini og upplifun þeirra af heimsókninni,“ segir Jón Óskar Halldórsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Toyota Kauptúni. Ný sýn á sýningarsalinn Toyota Motor Europe kynnti nýja hugmyndafræði fyrir evrópskt sölunet sitt árið 2022. Heimsóknin í sýningarsalinn er hugsuð sem hluti af samfelldu ferðalagi viðskiptavinarins sem getur hafist á netinu og haldið áfram í samtali við starfsfólk á staðnum. „Við horfum ekki lengur á sýningarsalinn eingöngu sem rými fyrir bíla. Hann er vettvangur fyrir fólk, ráðgjöf og persónulega þjónustu. Móttaka, setusvæði og stafrænir snertifletir þurfa að mynda eina heild,“ segir Jón Óskar. Nýjar merkingar við innganginn eru hluti af nýrri og samræmdri ásýnd Toyota Kauptúni. Öll skilti utan á húsinu og á lóðinni voru endurnýjuð. Fimm stór Toyota-merki voru sett á húsið, blár litur vék fyrir dökkgráum og bílaplanið var stækkað. „Við fengum rúmlega 190 bílastæði. Það gerir okkur kleift að skipuleggja geymslu bíla betur og tryggja viðskiptavinum stæði á besta stað, jafnvel á annatímum,“ segir Jón Óskar. Í anddyrinu hafa auk þess verið settir upp tveir sjálfsafgreiðslukassar fyrir þá sem vilja sækja bíla eða varahluti utan opnunartíma. Viðskiptavinurinn í miðju rýmisins Kjarni hönnunarinnar er að hafa viðskiptavininn í miðju rýmisins. Það birtist meðal annars í opnum setusvæðum, aðgengilegri móttöku og hlýlegri umgjörð sem auðveldar samtal og ráðgjöf. Opin setusvæði og hlýlegt efnisval skapa afslappaðra umhverfi fyrir viðskiptavini. „Nýtt móttökuborð og græni veggurinn blasa við um leið og komið er inn. Persónuleg þjónusta og hlýtt viðmót eiga að vera það fyrsta sem tekur á móti viðskiptavinum okkar,“ segir Jón Óskar. Biðaðstaðan var endurgerð frá grunni með kaffiaðstöðu, upplýsingaskjám, sófum, stólum og borðum. Í salnum eru ólíkir hlutar starfseminnar settir fram á skýran hátt: nýir bílar, betri notaðir bílar, Toyota Professional, verkstæðismóttaka og auka- og varahlutaverslun. Hver þáttur fær sitt eigið svæði án þess að heildin verði sundurlaus. Við hlið biðaðstöðunnar er sérstakt Hero model-stæði fyrir þann bíl sem lögð er áhersla á hverju sinni, með stórum skjá í bakgrunni. Stafrænt og persónulegt ferðalag Bílakaup hefjast sífellt oftar á netinu. Fólk ber saman gerðir, aflrásir, búnað og fjármögnun áður en það kemur á staðinn. Nýi sýningarsalurinn tengir þetta stafræna ferðalag við persónulega ráðgjöf á staðnum. Stórir skjáir og stafrænir snertifletir styðja við kynningu á bílunum og gera upplýsingarnar að sýnilegum hluta rýmisins. Stórir skjáir sýna gerðir, búnað og notkunarmöguleika á lifandi hátt. Tæknin kemur þó ekki í stað starfsfólks. „Hún á að styðja við samtalið og hjálpa okkur að taka enn betur mið af þörfum hvers viðskiptavinar,“ segir Jón Óskar. Ný staðsetning sýningarbíla og söluráðgjafa gefur viðskiptavinum greiðan aðgang að ráðgjöf og starfsfólki betri yfirsýn yfir salinn. „Viðskiptavinurinn ræður ferðinni en hefur sérfræðinga innan seilingar. Allt er gert til að auka gæði þjónustunnar og upplifunina,“ segir hann. Ráðgjafarsvæðin eru opin og aðgengileg, með skýra tengingu við móttöku og önnur þjónustusvæði salarins. Velkomin í þjónustu Í þjónustuhluta fyrirtækisins var farið í gagngera endurskipulagningu. Langa borðið í verkstæðismóttökunni vék fyrir þjónustuhreiðrum þar sem ráðgjafar geta sest niður með viðskiptavinum og veitt persónulega þjónustu í meira næði. Hraðþjónustan var jafnframt stækkuð, starfsstöðvum fjölgað og ný biðaðstaða útbúin. „Nýja skipulagið breytir ekki aðeins því hvernig salurinn lítur út heldur einnig hvernig hann er notaður. Samskiptin verða persónulegri og aðstaðan styður starfsfólkið í að veita betri þjónustu,“ segir Jón Óskar. Þá hefur verið útbúið sérstakt afhendingarherbergi þar sem viðskiptavinir taka við nýjum bíl innandyra og fá kennslu á hann í lokuðu og fallegu rými. Ný lýsing og skýrari framsetning skapa sterka heildarmynd í stórum og björtum sýningarsalnum. Sýningarsalurinn í nýju ljósi Allur ljósabúnaður var endurnýjaður og sett upp ljósastýrikerfi sem getur stýrt hverju ljósi fyrir sig. „Við getum búið til ólíkar senur, dregið athyglina að ákveðnum bílum og breytt birtunni eftir árstíma,“ segir Jón Óskar. Nýtt hljóðkerfi tryggir jafnframt jafna hljóðvist um allan salinn og auðveldar viðburðahald. Sama upplifun innan dyra og utan Endurnýjunin nær frá salnum og út að aðkomu hússins. Nýjar merkingar gera gestum auðveldara að rata og samræmd framsetning tengir starfsemina í Kauptúni við nýja ásýnd Toyota í Evrópu. Nýjar merkingar setja svip sinn á Toyota Kauptún og tengja ytra byrði hússins við endurnýjaðan sýningarsal. Eftir rúmlega hálfs árs framkvæmdir er ekki aðeins búið að endurnýja sýningarsalinn, viðskiptavinarýmið og þjónustuaðstöðuna. Toyota Kauptún hefur verið lagað að nýrri hugsun um hvernig fólk kynnist vörumerkinu, fær ráðgjöf og nýtir þjónustu þess. „Allar þessar breytingar eru hugsaðar til að auka gæði þjónustunnar og tryggja viðskiptavinum okkar sem besta upplifun,“ segir Jón Óskar að lokum. Toyota Kauptún við sólarlag. Endurnýjunin er hluti af samræmdri framtíðarsýn Toyota Motor Europe fyrir sölustaði fyrirtækisins.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Loka Krambúðinni á Húsavík Viðskipti innlent Lækka verð á þúsund vörum Neytendur Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Neytendur Breskur fjárfestir leitar á náðir ríkisins vegna sæstrengs til Íslands Viðskipti innlent Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Fleiri fréttir Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf