Fótbolti

Bein út­sending: Arnar og Orri svara fjöl­miðlum degi fyrir fyrsta leik

Sindri Sverrisson skrifar
Eitt og hálft ár er liðið síðan Orri Steinn Óskarsson spilaði síðast mótsleik fyrir íslenska landsliðið. Það var gegn Kósovó í mars 2025, í fyrstu leikjunum undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar sem gerði Orra að fyrirliða. Hann glímdi við meiðsli síðasta haust, í undankeppni HM.
Eitt og hálft ár er liðið síðan Orri Steinn Óskarsson spilaði síðast mótsleik fyrir íslenska landsliðið. Það var gegn Kósovó í mars 2025, í fyrstu leikjunum undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar sem gerði Orra að fyrirliða. Hann glímdi við meiðsli síðasta haust, í undankeppni HM. Getty/Alex Nicodim

Þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson og fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson sitja fyrir svörum á blaðamannafundi í dag fyrir fyrsta leik Íslands á nýrri leiktíð í Þjóðadeildinni í fótbolta. Bein útsending er á Vísi.

Ísland mætir Eistlandi á Laugardalsvelli á morgun klukkan 16, í fyrsta leiknum í sínum riðli í C-deild Þjóðadeildarinnar. Lúxemborg og Búlgaría eru einnig í sama riðli. 

Ljóst er að sigur í riðlinum myndi hjálpa Íslandi mikið í baráttunni um sæti á næsta stórmóti, EM 2028 í Bretlandi og Írlandi.

Bein útsending frá blaðamannafundinum er í spilaranum hér að neðan og hefst hún um klukkan 12:40 en fundurinn sjálfur hefst svo klukkan 12:45. Eftir fundinn taka svo við umræður í setti.


Tengdar fréttir

Stressandi dagur: „Gerðist mjög seint“

Daníel Leó Grétarsson fagnar nýrri áskorun hjá AGF í Danmörku eftir streitumikinn lokadag félagsskiptagluggans. Skipti hans til félagsins frá Sönderjyske gengu í gegn á ögurstundu.

Lands­liðið svitnaði undir vökulu auga vísinda­manna

Vísinda­menn frá Gator­ade Sports and Science Insti­tute söfnuðu gögnum um svita leik­manna ís­lenska karla­lands­liðsins í fót­bolta og eru bundnar vonir við að niður­stöðurnar á prófunum, sem hafa verið til staðar hjá stór­liðum á borð við Manchester City og Barcelona, geti skilað niður­stöðum sem gagnist leik­mönnum og lands­liðinu.

Landsliðin flúðu haustlægðina

Karlalandslið Íslands flúði fyrstu haustlægð ársins og æfði innanhúss í Miðgarði í Garðabæ í morgun. U21 landsliðið gerði slíkt hið sama.

Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra

Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland og íslenska landsliðsins, fékk högg á nýrað í leik við OB í dönsku úrvalsdeildina um helgina. Hann þurfti að fara undir hnífinn og verður lengi frá.

Dauði varnarmannsins

„Þarf ekki að hafa varnarskóla frekar en tækniskóla?“ spyr Guðlaugur Victor Pálsson og hlær. Hann hefur sterkar skoðanir á varnarhluta íslenska landsliðsins og framtíðarhorfum hvað það varðar. Varnarmenn séu í útrýmingarhættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×