37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 21. september 2026 14:00 Það er sjálfsagt, eðlilegt og mikilvægt að ræða skipulag og skilvirkni í grunnskólum. En til að upplýsa Viðskiptaráð Íslands verður líka að ræða það sem kennarastarfið felur í sér. Þegar því er slegið upp að aðeins 37% af vinnutíma kennara fari í kennslu hljómar það líkt og hin 63% séu einhvers konar biðtími. Það er ekki svo og það veit Viðskiptaráð. Kennsluskylda í fullu starfi er 26 kennslustundir á viku, eða 17,33 klukkustundir. Samkvæmt sama kjarasamningi fara 11,67 klukkustundir í undirbúning og úrvinnslu kennslu. Kennsla er meira en kennslustundin Þar fyrir utan eru önnur fagleg störf og starfsþróun. Teymisfundir, gerð námsáætlana, þróun kennsluhátta, samstarf árganga og skólaþróunarverkefni eru dæmi um fagleg störf. Starfsþróun felur meðal annars í sér námskeið og ráðstefnur. Um 2.400 þátttakendur frá yfir 150 skólum um allt land sóttu rafræna ráðstefnu um skólamál núna um helgina. Kennsla er meira en mínúturnar þegar kennarinn stendur fyrir framan nemendur. Það þarf að undirbúa kennsluna, útbúa verkefni, fara yfir vinnu nemenda, meta hæfni, skrá námsmat, laga námið að ólíkum þörfum, funda með samstarfsfólki og eiga samskipti við heimilin. Fræðsla innan skóla, kynningar á nýju námsefni og kennsluaðferðum, fræðsla um tækni og gervigreind og lestur fræðilegs efnis eru dæmi um skólaþróun. Þetta er ekki tími frá kennslu. Stór hluti tímans er vinna fyrir betri kennslu. Ræðum frekar um skilvirkni. Fleiri kennslustundir og færri hvað? Við getum rætt hvort kennarar eigi að kenna fleiri stundir. Þá þurfum við að ákveða hvað við eigum að taka út á móti. Minni undirbúning? Minna námsmat? Minna samstarf? Minni samskipti við foreldra? Minni einstaklingsmiðun? Fleiri kennslustundir geta kallað á meiri undirbúning og meiri úrvinnslu, gefið að því sé vel sinnt. Það er allt annað mál. Umræðan ætti þess vegna ekki að snúast um hversu hátt hlutfall vinnudagsins kennarinn stendur fyrir framan nemendur heldur hvernig við nýtum allan vinnutímann þannig að nemendur fái sem besta kennslu. En snúum þessu við Hvernig væri þessi fyrirsögn? „Aðeins 37% af vinnutíma sölumanna fer í sölu“. Hinir 25 tímarnir fara í að undirbúa fundi, gera tilboð, svara tölvupósti, greina þarfir viðskiptavina, skrá í kerfi, afla nýrra viðskiptavina, vinna með öðrum deildum, fylgja eftir samningum, funda innanhúss og kynna sér vörur og markaðinn. Enginn skynsamur framkvæmdastjóri myndi segja að þar fyndust 25 ónýttar klukkustundir. Ef þú tekur undirbúninginn frá sölumanninum er líklegt að salan dragist saman. Ef við skoðum framkvæmdastjórann; vinnur hann um 40 stunda vinnuviku og ver 15 klukkutímum á fundum. Auk þess les hann gögn, undirbýr ákvarðanir, vinnur fjárhagsáætlanir, svarar erindum, rýnir samninga, undirbýr fundi, sinnir starfsmannamálum, fylgist með rekstri og hugsar fram í tímann. Í banka er starfsmaður ekki aðeins að vinna þegar viðskiptavinurinn stendur við afgreiðsluborðið. Lögmaður er ekki aðeins að vinna þegar hann stendur í dómsal. Endurskoðandi er ekki aðeins að vinna þegar hann kynnir ársreikninginn. Framkvæmdastjóri er ekki aðeins að stjórna þegar hann situr starfsmannafund. Og kennari er ekki aðeins að kenna þegar nemendurnir sitja fyrir framan hann. Þetta veit Viðskiptaráð mætavel. Hvað skilar betri þjónustu? Það sem gerist áður og eftir er hluti af því sem ræður því hversu vel sjálf þjónustan tekst. Spurningin er ekki hversu stór hluti vinnunnar er sýnilegur viðskiptavininum, nemandanum eða almenningi. Spurningin er hvort öll vinnan skili betri þjónustu. Það breytist ekki með samræmdum prófum, samanburði, nýrri námskrá eða sérhæfðum úrræðum fyrir þau sem falla utan kerfis eða skilja ekki íslensku. Gamlar kerfislausnir Viðskiptaráðs eru vond söluvara. Höfundur er kennari og skólastjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmar Bogi Hafliðason Mest lesið Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar