„Mér finnst það ekki vandamál“ Valur Páll Eiríksson skrifar 21. september 2026 09:31 Michael Carrick er ósammála því að leikmenn hans séu ekki í nægilega góðu formi. Getty/Dan Mullan Michael Carrick, þjálfari Manchester United, hafnar því að slæmt form og líkamlegt ástand leikmanna liðsins orsaki verstu byrjun liðsins á tímabili síðan 2014. Liðið gerði jafntefli við Fulham í gær.
United er aðeins með fimm stig eftir fyrstu fimm leikina í ensku úrvalsdeildinni og forðaðist naumlega þriðja tapið í röð þökk sé jöfnunarmarki Matheus Cunha á Craven Cottage í gær eftir að klaufalegt sjálfsmark Lisandro Martínez hafði komið Fulham yfir. United tapaði borgarslagnum fyrir City síðustu helgi og féll svo út í enska deildabikarnum fyrir Brighton eftir 3-2 tap á heimavelli þar sem rauðklæddir komust 2-0 yfir áður en þeir köstuðu leiknum frá sér. Cunha kom í veg fyrir annað tap í gær og sagði eftir leik að leikmenn Fulham hefðu lagt meiri orku í leikinn en leikmenn United. Carrick segir form leikmanna ekki vandamálið þrátt fyrir að gögnin sýni að leikmenn Fulham hafi hlaupið sex kílómetrum lengra en andstæðingarnir í gær. „Það leit ekki þannig út fyrir mér,“ sagði Carrick aðspurður um ummæli Cunha. „Ég var nokkuð ánægður með það hvernig við kláruðum leikinn. Mér fannst við raunar klára hann virkilega sterkt og við héldum áfram allt til loka. Svo mér finnst það ekki vandamál, nei.“ United er aðeins með fimm stig í deildinni og hefur ekki byrjað tímabil svo illa í tólf ár. Carrick segir þó mikilvægt að hafa náð stigi í gær. „Það er stórt. Við tókum stig þó við höfum viljað vinna, en þetta er hluti af lærdómskúrfu liðsins,“ segir Carrick. „Hvernig við bregðumst við í framhaldinu, það er hluti af því að vaxa sem hópur.“ Næsti leikur United er eftir landsleikjahlé, gegn Tottenham 10. október.
Manchester United Enski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Við fórum að spila alvöru körfubolta“ Sport Fleiri fréttir Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Sjá meira