Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar 21. september 2026 07:00 Í síðustu viku fjallaði ég hér á Skoðunum á Vísi um Áfram Ísland og tengsl félagsins við auglýsingastofuna Pipar\TBWA í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst sl. Sú umfjöllun vakti spurningar um hverjir stæðu straum af kostnaði við nei-hliðina. Sanngirnin krefst þess að sömu aðferð sé beitt á hina fylkinguna: Já til að sjá, sem samkvæmt skráningu hjá Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra ber hið formlega heiti Já 2026. Tímalína og rekstrarform Umsókn um kennitölu félagsins er dagsett 27. maí 2026. Samkvæmt svörum sem stjórn félagsins hefur nú veitt undirrituðum var formlegur stofnfundur haldinn sama dag – ekki 18. júní, eins og almennt var skilið af fjölmiðlaumfjöllun um 300 manna samkomuna á Kjarvalsstöðum þann dag. Sá viðburður reynist því hafa verið opinber kynning á félagi sem þegar hafði verið stofnað, fremur en stofnfundurinn sjálfur. Samkvæmt skráningu hjá Fyrirtækjaskrá eru Jónas Hagan Guðmundsson formaður, Berglind Guðmundsdóttir meðstjórnandi og prókúruhafi og Hjálmar Vilhjálmsson meðstjórnandi. Í svörum til undirritaðs upplýsir stjórnin hins vegar að á aukaaðalfundi í júlí hafi Gréta María Grétarsdóttir og Hrund Rudolfsdóttir verið kjörnar í stjórn til viðbótar – breyting sem ekki hefur verið tilkynnt til Fyrirtækjaskrár. Opinbera skráin endurspeglar því ekki núverandi stjórn félagsins. Kolbeinn Arnarson, sem kom fram fyrir hönd félagsins í fjölmiðlum, gegndi stöðu kosningastjóra en sat ekki í stjórn. Hver borgar? Öfugt við Áfram Ísland, sem svaraði ekki sömu spurningum frá mér þrátt fyrir sama frest, svaraði stjórn Já 2026 skriflega og veitti umbeðnar upplýsingar. Félagið hefur móttekið samtals 85 milljónir króna í framlög – 46% frá einstaklingum og 54% frá fyrirtækjum. Það er nokkru hærri upphæð en þær 70–75 milljónir sem talskona félagsins nefndi opinberlega í ágúst. Þar með lýkur þó gagnsæinu. Stjórnin neitar að gefa upp hvaða einstaklingar eða fyrirtæki standa að baki þessum 85 milljónum. Þar á meðal fæst ekki upplýst hvort félög tengd stjórnarmönnum sjálfum – Adira, Varða Capital og Apperk – hafi lagt félaginu til fé, vörur eða þjónustu. Sama trúnaðarregla gildir um tvo verktaka sem unnu sjónvarpsauglýsingar og samfélagsmiðlaefni fyrir félagið: hvorki nöfn þeirra né umsamdar fjárhæðir eru gefnar upp. Ársreikningur verður, að sögn stjórnar, ekki birtur opinberlega heldur eingöngu lagður fyrir félagsmenn á aðalfundi. Ólíkt Áfram Íslandi staðfestir stjórnin hins vegar afdráttarlaust að engin framlög hafi borist frá erlendum aðilum eða stjórnmálaflokkum. Niðurstaða Já 2026 svaraði spurningum mínum – Áfram Ísland gerði það ekki. Ekki einni einustu spurningu. Það er umtalsverður munur á viðmóti fylkinganna tveggja gagnvart fyrirspurnum fjölmiðla og almennings og full ástæða til að halda því til haga. Svörin sjálf draga þó fram sama grunnmynstur og einkennir bæði félögin: hvorugt er stjórnmálaflokkur og því lýtur hvorugt þeim reglum um framlagaþak, opinbera birtingu og eftirlit Ríkisendurskoðunar sem gilda um stjórnmálaflokka. Kjósandinn fær samt að vita heildartöluna – 85 milljónir hjá Já 2026. En leyndi hvílir hjá Áfram Ísland sem samkvæmt Meta eyddi 200–300 milljónir á FaceBook, auk 150 þús króna fyrir leigu á léninu aframisland.is. Í tilfelli beggja fær almenningur ekki að vita hverjir í raun stóðu að baki fjármögnuninni, né hvers þeir kunna að hafa vænst í staðinn. Sú staðreynd að í svo viðamiklu og mikilvægu máli sem ESB-viðræður eru fyrir þjóðina í heild og hvern og einn kjósanda skuli umræðunni snúið upp í kappsmál sem í reynd klauf þjóðina í tvær fylkingar ætti að vera Alþingi tilefni til að skoða nánar. Spurningin um hvort fjársterkir aðilar eigi að geta ráðið því með leynd hvernig lýðræðisleg umræða fer fram ætti einnig að vekja alvarlegar spurningar. Það að hópur fjársterkra aðila geti, að því er virðist, tekið yfir umræðuna, keypt sér athygli almennings fyrir fé og komið ákveðnum hugmyndum á framfæri – hugmyndum sem í sumum tilvikum kunna að vera skrumskældar eða jafnvel ósannar – ætti að verða okkur alvarlegt umhugsunarefni. Það er hafið yfir vafa að báðar þessar fylkingar voru fyrst og fremst að verja þá hagsmuni sem þær töldu mikilvæga. Þangað til löggjafinn ákveður að félög sem í reynd stunda kosningabaráttu í jafn afdrifaríku máli og aðildarviðræður við Evrópusambandið skuli lúta sambærilegum gagnsæiskröfum og stjórnmálaflokkar, verður þessari spurningu ósvarað í hvert sinn sem þjóðin gengur að kjörborðinu. Höfundur er verkfræðingur á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar