Sveindís Jane tileinkaði kærasta sínum markið Aron Guðmundsson skrifar 21. september 2026 07:24 Sveindís Jane fagnar marki sínu í nótt Mynd; Angel City Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir gulltryggði 3-0 sigur Angel City NWSL deildinni í Bandaríkjunum í nótt þar sem liðið heimsótti Utah Royals. Sveindís tileinkaði kærasta sínum markið en hann átti afmæli.
Það er óhætt að segja að heimakonur í liði Utah Royals hafi gert sér lífið leitt í leiknum því á fyrstu 25 mínútum fengu tveir leikmenn liðsins að líta rauða spjaldið. Angel City gekk á lagið og komst tveimur mörkum yfir áður en Sveindís Jane gulltryggði sigur liðsins með marki á 67. mínútu. Angel City getur þakkað Sveindísi að öllu leyti fyrir markið því það á hún skuldlaust. Eftir að hafa skilað öflugri pressu og unnið boltann nálægt vítateig Utah Royals sótti Sveindís Jane að marki heimakvenna og kom boltanum í netið. Áttunda mark Sveindísar á tímabilinu og er hún nú markahæsti leikmaður Angel City á tímabilinu ásamt Maiara Niehues. Markið má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni en með því jafnaði Sveindís Jane félagsmet Angel City yfir flest mörk skoruð hjá leikmanni í NWSL-deildinni á einu tímabili. Holding þakkar Sveindísi fyrir gjöfina sem var í formi sigurmarks Angel City. Sveindís fagnaði markinu með því að gera hjarta með höndum sínum og tileinkaði það kærasta sínum, knattspyrnumanninum Rob Holding, sem átti afmæli. Vart til betri afmælisgjöf að fá en Holding þakkaði kærustu sinni kærlega fyrir gjöfina. Angel City er sem stendur í 6. sæti NWSL-deildarinnar með 39 stig eftir 25 umferðir og sækir að næstu liðum fyrir ofan sig, þar með talið Utah Royals sem vermir 4. sæti deildarinnar. Átta efstu lið deildarinnar að lokinni deildarkeppni fara áfram í úrslitakeppni.
Bandaríski fótboltinn Fótbolti Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira