Lífið

Sjóðurinn tómur

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ódysseifskviða Christophers Nolan er það verkefni sem hefur hlotið hæstu endurgreiðsluna í ár, tæplega 870 milljónir króna.
Ódysseifskviða Christophers Nolan er það verkefni sem hefur hlotið hæstu endurgreiðsluna í ár, tæplega 870 milljónir króna. Universal

Potturinn sem ætlaður var fyrir endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi kláraðist um mitt ár. Nokkrar umsóknir bíða afgreiðslu. Sótt verður um aukafjárveitingu frá Alþingi.

Morgunblaðið greinir frá þessu og hefur eftir upplýsingum frá Kvikmyndamiðstöð Íslands sem sér um framkvæmd endurgreiðsla.

Fjárheimild fyrir árið 2026 nam tæpum fjórum milljörðum króna og 3. júlí var kvikmyndagerðafólki tilkynnt að búið væri að úthluta öllum peningnum. Nefnd um endurgreiðslur muni nýta sér heimild í reglugerð til að fresta útborgun fram á næsta ár ef ekki fást frekari fjárveitingar frá stjórnvöldum. 

Átta verkefni hafa fengið samþykktar endurgreiðslur en bíða eftir að fá greitt út. Í grein Morgunblaðsins segir að verkefnin fái um 257 milljónir en forsvarsmenn þurfa að bíða eftir greiðslu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.