„Hefði verið sætt að ná þrennu í fyrri hálfleik“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. september 2026 18:48 Kjartan Kári Halldórsson var frábær í liði FH í dag. Vísir/Anton Brink Kjartan Kári Halldórsson skoraði tvö og lagði upp eitt fyrir FH er liðið vann öruggan 5-2 sigur gegn Stjörnunni í neðri hluta Bestu-deildar karla í dag. „
Þetta var ótrúlega sætt. Við komum í fyrri hálfleikinn og ætluðum bara að pressa þá. Við gerðum það heldur betur. Það var mjög hátt orkustig hjá okkur þó fyrstu 5-10 mínúturnar hafi verið smá erfiðar. En síðan vorum við bara beinskeyttir fram á við og uppskárum fjögur mörk í fyrri hálfleik,“ sagði Kjartan Kári í leikslok.FH-ingar fengu þó á sig tvö mörk snemma í seinni hálfleik, sem hleypti örlítilli spennu í leikinn. Eitthvað sem FH-ingar kalla ábyggilega óþarfa spennu, en Kjartan viðurkennir að líklega hafi menn mætt værukærir til leiks eftir hlé eftir að hafa skora fjögur í fyrri hálfleik. „Við töluðum auðvitað um það í hálfleik að við ætluðum ekki að slökkva á okkur. Leikurinn var ekkert búinn og við vissum að þeir myndu mæta dýrvitlausir í seinni hálfleikinn. En við slökktum á okkur í smá og lið eins og Stjarnan getur refsað fyrir það. Ég er auðvitað líka bara gríðarlega svekktur yfir því að við skyldum fá þessi tvö mörk á okkur en síðan koma menn inn á eins og Guðmundur Andri, Arnór Borg, Sverrir og þeir og þeir bara klára leikinn fyrir okkur.“ Hann segir þó einnig að það sé styrkleikamerki að FH-liðið hafi náð að stoppa í götin eftir að Stjörnumenn skoruðu sín tvö mörk. „Já, algjörlega. Og eins og sást í fyrri hálfleik þá heyrði ég það að þeir hafi verið miklu meira með boltann og fleiri snertingar inni í teig. En það voru bara allir að henda sér fyrir boltann til að verja markið okkar. Við vorum bara með kveikt á okkur þangað til þeir skora þessi tvö mörk. En við vorum annars að verjast eins og alvöru menn og hentum okkur fyrir allt. Það var bara gríðarlega fallegt að sjá.“ Eins og áður segir skoraði Kjartan Kári tvö mörk fyrir FH og lagði upp eitt til viðbótar. Mörkin og stoðsendingin komu í fyrri hálfleik, en hann var hársbreidd frá því að fullkomna þrennuna þegar skot hans hafnaði í stönginni, einnig í fyrri hálfleik. „Ég hélt að hann væri á leiðinni inn, en þeir björguðu síðan á línu. Það hefði klárlega verið sætt að ná þrennunni í fyrri hálfleik, ég ætla ekki að ljúga því“
Íslenski boltinn Besta deild karla FH Stjarnan Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjá meira