Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar 19. september 2026 10:01 Ekki heldur í uppþvottalegi, málningu, skrifstofuhúsgögnum, prentpappír, hreinsiefnum eða öllum þeim ótal vörum og þjónustu sem við kaupum á hverjum degi. Og það er kannski bara ágætt. Við tölum mikið um mikilvægi þess að taka upplýstar ákvarðanir. Að neytendur, fyrirtæki og opinberar stofnanir eigi að kynna sér hvaðan vörur koma, hvernig þær eru framleiddar, hvaða áhrif þær hafa á loftslag, náttúru og heilsu, hvað er í þeim og hvað verður um þær þegar notkun lýkur. Allt er þetta rétt. Vandinn er bara sá að enginn hefur tíma til að verða sérfræðingur í öllu. Ef fyrirtæki ætlar að kaupa ný húsgögn ætti innkaupastjórinn helst að kunna skil á hráefnum, efnavöru, losun, líftíma vörunnar, endurvinnslu, vinnuaðstæðum og ýmsu fleiru áður en hann ýtir á „panta“. Ef það þarf síðan líka að kaupa sápu, ljósaperur, prentþjónustu og kaffibolla sama daginn verður verkefnið fljótt orðið ansi stórt. Nútímahagkerfið byggir á ótrúlega flóknum aðfangakeðjum og upplýsingamagnið sem fylgir hverri vöru er meira en nokkur einstaklingur getur raunhæft unnið úr í daglegum rekstri. Þess vegna þurfum við kerfi sem hjálpa okkur að taka góðar ákvarðanir án þess að þurfa að byrja rannsóknina frá grunni í hvert einasta skipti. Þarna koma staðlar, vottanir og áreiðanleg umhverfismerki til sögunnar. Í grunninn eru þau leið til þess að pakka saman mikilli þekkingu og gera flóknar ákvarðanir einfaldari. Einhver annar hefur lesið smáa letrið, skoðað kröfurnar, metið áhrifin og sett upp kerfi sem við getum treyst. Það er ekki leti. Það er hagkvæmni. Það er í raun einn af mikilvægustu kostum slíkra kerfa. Þau draga úr leitarkostnaði, minnka óvissu og gera einstaklingum og fyrirtækjum kleift að taka betri ákvarðanir á skemmri tíma. Þetta finnst mér stundum vanta í umræðuna um sjálfbærni. Hún er gjarnan sett fram eins og hún hljóti að vera flókin, dýr og tímafrek. Eins og hvert fyrirtæki þurfi fyrst að stofna vinnuhóp, móta stefnu, halda nokkra fundi og panta ráðgjafaskýrslu áður en hægt er að skipta um handsápu. Auðvitað eru stórar ákvarðanir til sem krefjast ítarlegrar vinnu, greiningar og stefnumótunar. En ef við viljum að sjálfbærari ákvarðanir verði raunverulega hluti af daglegum rekstri þá verðum við líka að gera þær einfaldar. Stundum er verkefnið ekkert flóknara en að velja betri kost þegar hann stendur til boða og gera það aftur næst. Þarna getur Svanurinn skipt máli. Þegar vara eða þjónusta ber Svansmerkið hefur hún farið í gegnum skilgreindar kröfur sem taka mið af umhverfisáhrifum yfir líftímann. Fyrir þann sem tekur innkaupaákvörðun þýðir það einfaldlega minni óvissu og minna rannsóknarstarf. Í stað þess að fyrirtæki þurfi sjálft að meta allar fullyrðingar framleiðenda, bera saman tugi mismunandi umhverfisstaðhæfinga og reyna að greina hvað er raunverulegt og hvað er fyrst og fremst markaðssetning, getur það stuðst við viðurkennt merki sem byggir á fyrirfram skilgreindum viðmiðum. Þetta verður sérstaklega áhugavert þegar við hættum að hugsa aðeins um einstaklinginn í versluninni og horfum líka á innkaup fyrirtækja og opinberra stofnana. Einstaklingur kaupir kannski einn pakka af vöru. Fyrirtæki kaupir hundrað. Stofnun getur keypt þúsundir vara og þjónustu á ári. Þar liggja gríðarleg áhrif. Litlar breytingar á innkaupastefnu geta því haft mun meiri áhrif en við gerum okkur stundum grein fyrir. Ein einföld regla um að velja vottaðan valkost þar sem hann stendur til boða getur með tímanum haft veruleg áhrif á eftirspurn, markaðinn og að lokum á það hvernig vörur og þjónusta eru framleidd. Og þetta snýst ekki eingöngu um umhverfið. Góð innkaup snúast líka um áhættustýringu, trúverðugleika og skilvirkni. Fyrirtæki þurfa stöðugt að taka ákvarðanir um vörur og þjónustu og það kostar bæði tíma og peninga að sannreyna upplýsingar. Þegar traust kerfi eru til staðar verður ákvarðanatakan einfaldari. Þar liggur líka hagkvæmnin. Sjálfbærni og hagkvæmni eru nefnilega ekki andstæður. Þvert á móti geta góð kerfi gert hvort tveggja mögulegt á sama tíma. Kannski er það einmitt kjarninn í þessu öllu. Ef við viljum að sjálfbærara val verði algengara þá mega það ekki alltaf vera erfiðasta valið. Þau þurfa að vera einföld, aðgengileg og traust. Við getum ekki byggt árangur á því að allir verði sérfræðingar í öllu. Við þurfum að byggja kerfi sem gera fólki kleift að taka góðar ákvarðanir án þess að þurfa að lesa hundrað blaðsíður áður en varan fer í innkaupakörfuna. Sjálfbærni þarf því ekki alltaf að byrja á stórri stefnumótun eða langri aðgerðaáætlun. Stundum byrjar hún einfaldlega hjá manneskjunni sem pantar kaffið, sápuna, húsgögnin eða pappírinn. Þegar slíkar ákvarðanir margfaldast yfir fyrirtæki, stofnanir og samfélagið allt geta áhrifin orðið veruleg. Svansdagarnir verða haldnir 23. til 30. september og mér finnst tilvalið að nota þá til að spyrja einnar einfaldar spurningar: Hvað kaupum við reglulega í okkar rekstri þar sem við gætum gert aðeins betra val án þess að gera lífið nokkuð flóknara? Ég ætla alla vega ekki að verða sérfræðingur í salernispappír. Ég vil bara geta treyst því að einhver annar hafi unnið heimavinnuna. Höfundur er umhverfis- og auðlindafræðingur og situr í stjórn Svansráðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Logi Jóhannsson Sjálfbærni Umhverfismál Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun