Þarf að toga í fleiri þræði á leigumarkaði? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar 17. september 2026 06:03 Nú þegar forsendur kjarasamninga eru brostnar heyrast ýmsar kröfur um frekari aðgerðir stjórnvalda til að bæta stöðu leigjenda. En áður en gripið er til nýrra inngripa er vert að skoða hvaða aðgerðum var lofað við gerð núverandi kjarasamninga, hvernig efndir hafa verið, hvort þær hafi skilað tilætluðum árangri og hvort frekari reglusetning sé líkleg til að bæta stöðu leigjenda. Loforð gefin, loforð efnd Í tengslum við kjarasamningana 2024 hétu stjórnvöld ýmsum aðgerðum á húsnæðismarkaði. Húsnæðisbætur voru meðal annars hækkaðar um 25% í samræmi við loforð þáverandi ríkisstjórnar, sem var áætlað að kostaði ríkissjóð um 2,5 ma.kr. á ári. Einnig var boðað að verja 7 til 9 ma. kr. á ári til stofnframlaga vegna uppbyggingar íbúða hjá óhagnaðardrifnum húsnæðisfélögum. Fjárheimildir til þess hafa verið yfir 7 ma. kr. á ári frá gerð samninganna. Núverandi stjórnvöld hyggjast að vísu draga úr fjárheimildum í ár, enda mikið safnast upp af ónýttum heimildum undanfarin ár. Jafnframt átti að setja skýrari ramma um ákvörðun og fyrirsjáanleika leigufjárhæða. Nú er almennt óheimilt að breyta leigufjárhæð fyrstu tólf mánuði tímabundins leigusamnings og til stendur að takmarka frekari breytingar á leigufjárhæðum við eitt skipti á ári. Frasinn loforð gefin, loforð efnd á því vel við um loforð þeirra þáverandi stjórnvalda tengd leigumarkaðinn í síðustu kjarasamningum. Íþyngjandi reglur geta dregið úr framboði Nú þegar lagðar eru til frekari takmarkanir á möguleika leigusala til breytinga á leiguverðum er vert er að hafa í huga hvernig leigumarkaðurinn er samsettur á Íslandi. Ólíkt því sem þekkist víða erlendis er framboð á íslenskum leigumarkaði borið uppi af einstaklingum sem leigja út íbúðir, en ekki fagaðilum líkt og leigufélögum. Um 60% leigjenda leigja húsnæði af einstaklingum. Þetta þýðir að viðbrögð einstaklinga skipta miklu máli fyrir framboð. Sé útleiga íbúða gerð þyngri í vöfum eða möguleikar leigusala til að bregðast við kostnaðarhækkunum takmarkaðir geta eigendur ákveðið að selja íbúðir sínar í stað þess að leigja þær út. Reglur sem eiga að vernda leigjendur geta því haft öfug áhrif, með því að draga úr framboði og þrýsta leiguverði upp. Stuðningur færst yfir á leiguhliðina Á sama tíma hefur opinber húsnæðisstuðningur færst verulega yfir á leiguhlið húsnæðismarkaðarins. Allt fram til ársins 2016 fóru um og yfir 75% af húsnæðisstuðningi hins opinbera til einstaklinga á eignahlið markaðarins. Frá árinu 2017 hefur hins vegar meira en helmingur húsnæðisstuðnings hins opinbera runnið til leigjenda, þrátt fyrir að þeir séu aðeins um fjórðungur af húsnæðismarkaðnum. Húsnæðisstuðningurinn á eigna- og leiguhlið markaðarins er jafnframt eðlisólíkur og það hefur leitt til ójafnræðis milli eigenda og leigjenda. Húsnæðisbætur, sem eru stærsta einstaka stuðningsúrræðið á húsnæðismarkaði, eru bundnar við það að einstaklingur sé á leigumarkaði. Tveir einstaklingar í nákvæmlega sömu stöðu, þ.e. með sömu tekjur og eignir eiga þannig rétt á mismiklum opinberum stuðning eftir því hvort þeir leigja eða eiga húsnæði sitt. Hluti stuðningsins á leigumarkaði er jafnframt bundinn við tilteknar íbúðir fremur en einstaklinga. Sá sem fær úthlutað íbúð hjá húsnæðisfélagi sem hefur fengið stofnframlög getur þannig bæði notið niðurgreiddrar leigu og fengið húsnæðisbætur, á meðan einstaklingur í sambærilegri stöðu utan kerfisins fær aðeins húsnæðisbætur. Slíkt fyrirkomulag skapar ójafnræði og dregur úr hreyfanleika á húsnæðismarkaði. Þarf frekari opinberar íhlutanir? Markmið húsnæðisstefnu ætti ekki að vera að ýta fólki sérstaklega inn á eignamarkað eða leigumarkað, heldur að fólk geti búið í viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði. Til þess þarf fyrst og fremst meira framboð húsnæðis. Þegar kallað er eftir frekari aðgerðum á leigumarkaði, til viðbótar við þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til, er vert að spyrja hvort markmiðin með fyrri íhlutunum hafi náðst. Ef svarið við því er nei, er þá skynsamlegt að grípa til frekari opinberra íhlutana? Eða væri ráð að hugsa hlutina upp á nýtt? Stjórnvöld ættu að tryggja að húsnæðisstuðningur sé markviss, hlutlaus gagnvart því hvort einstaklingar eiga eða leigja og renni til þeirra sem mest þurfa á honum að halda. Stuðningurinn ætti með öðrum orðum að fylgja fólki fremur en tilteknu búsetuformi eða tilteknum íbúðum. Illa útfærður stuðningur og frekari hömlur á leigusala geta dregið úr framboði leiguhúsnæðis og þrýst leiguverði upp. Það væri engum til góðs, allra síst leigjendum. Höfundur er hagfræðingur Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leigumarkaður Ragnar Sigurður Kristjánsson Húsnæðismál Mest lesið Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar