48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar 16. september 2026 12:02 Sem aðstandandi hef ég fylgst með þeirri ókyrrð sem ríkt hefur innan SÁÁ að undanförnu af miklum þunga. Fólkið okkar, dætur, synir, foreldrar og systkini, má síst af öllu við því að óvissa, átök og trúnaðarbrestur ríki í því kerfi sem á að taka á móti því þegar það er hvað viðkvæmast. SÁÁ hafa unnið ómetanlegt starf í áratugi. Þar hafa ótal einstaklingar fengið hjálp og fjölskyldur fengið von þegar allt virtist tapað. Einmitt þess vegna skiptir svo miklu máli að við getum treyst SÁÁ. Og traust verður til með gagnsæi. SÁÁ eru frjáls félagasamtök en ríkið kaupir af þeim umfangsmikla heilbrigðisþjónustu fyrir gríðarlegt almannafé. Samkvæmt fjárlagagögnum er gert ráð fyrir 2.048 milljónum króna til SÁÁ árið 2026, rúmum tveimur milljörðum króna. Það er um 79% af þeim fjárveitingum sem sérstaklega eru tilgreindar til meðferðarstarfs SÁÁ, Krýsuvíkur og Samhjálpar/Hlaðgerðarkots. Þegar einn aðili fær svo stóran hluta þess opinbera fjármagns sem hér um ræðir hlýtur krafan um gagnsæi að vera rík. Gagnsæi sem þarf að berjast fyrir Þess vegna vekur það furðu mína að þegar Rótin óskaði eftir þjónustusamningi Sjúkratrygginga Íslands við SÁÁ var hann afhentur með umfangsmiklum upplýsingum afmáðum. Þar á meðal voru upplýsingar um magn og verð þjónustunnar, þjónustueiningar, greiðslufyrirkomulag og forsendur endurgjalds. Þetta eru ekki einhver aukaatriði heldur upplýsingar sem varða það hvað ríkið er að kaupa fyrir almannafé, hversu mikið og á hvaða verði. Rótin kærði ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands til úrskurðarnefndar um upplýsingamál og ég held að við séum mörg sem bíðum eftir niðurstöðunni. Ekki vegna þess að við höfum ákveðið fyrirfram að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað, heldur vegna þess að við viljum fá að sjá. Gagnsæi á ekki að vera eitthvað sem almenningur eða félagasamtök þurfa að berjast fyrir þegar milljarðar af almannafé eru annars vegar. 48 manna stjórn – og hvað kostar hún? Svo er það stjórnskipulagið. Aðalstjórn SÁÁ er skipuð 48 einstaklingum og þar fyrir utan starfar níu manna framkvæmdastjórn. Samþykktir SÁÁ gera jafnframt ráð fyrir þóknun fyrir setu í framkvæmdastjórn og launaðri formennsku. Mér finnst því fullkomlega eðlilegt að spyrja hvort þörf sé á svo umfangsmiklu stjórnskipulagi. Við höfum þó eina tölu sem varpar ljósi á stærðargráðu rekstrarins. Í rekstraráætlun heilbrigðissviðs SÁÁ fyrir árið 2024 var gert ráð fyrir tæplega tveggja milljarða króna rekstrargjöldum. Þar af voru um 1,3 milljarðar laun og launatengd gjöld. Það sýnir að starfsemin sjálf er umfangsmikil og mannaflsfrek. En það svarar ekki spurningunni sem ég vil fá svar við: Hvað kostar yfirstjórnin? Hversu mikið er greitt í þóknanir til framkvæmdastjórnar? Hver eru laun formanns og æðstu stjórnenda? Hvað kostar stjórnsýslan í heild og hversu stór hluti fjármagnsins fer beint til lækna, hjúkrunarfræðinga, ráðgjafa og annars fagfólks sem sinnir sjúklingunum? Ég veit ekki svörin. Og ég ætla ekki að giska á þau. En þegar starfsemin er fjármögnuð með milljörðum af almannafé finnst mér að við eigum ekki að þurfa að giska. Kannski er einfaldlega kominn tími til að endurskoða stjórnskipulagið frá grunni. Þarf 48 manna aðalstjórn og þar að auki níu manna framkvæmdastjórn utan um þessa heilbrigðisþjónustu? Á ríkið að bera meiri ábyrgð? Og kannski eigum við að þora að spyrja enn stærri spurningar. Þegar ríkið leggur rúma tvo milljarða króna á ári til þessarar heilbrigðisþjónustu, á ríkið þá ekki líka að bera mun skýrari ábyrgð á því hvernig hún er rekin og henni stjórnað? Þekkingin, reynslan og fagfólkið sem hefur byggt upp meðferðarstarfið á Vogi er verðmætt og það þarf að varðveita. Spurningin er hvort Vogur ætti að starfa undir mun skýrari aðkomu hins opinbera að stjórnun, ábyrgð og eftirliti. Væri til dæmis hægt að tengja starfsemina með formlegri hætti við hið opinbera heilbrigðiskerfi eða heilbrigðisyfirvöld? Gæti ríkið tekið meiri ábyrgð á yfirstjórn heilbrigðisþjónustunnar á sama tíma og fagfólkið á Vogi héldi áfram að sinna því sem það kann best? Mér finnst að minnsta kosti tímabært að þessi möguleiki sé ræddur. Fíknisjúkdómar eru heilbrigðisvandi og meðferð við þeim er heilbrigðisþjónusta. Þegar hið opinbera ver milljörðum króna í þessa þjónustu eigum við að geta gert sömu kröfur um faglega ábyrgð, gagnsæi og góða stjórnarhætti og annars staðar í heilbrigðiskerfinu. Félagasamtökin SÁÁ geta áfram gegnt mikilvægu hlutverki í félagsstarfi, fræðslu, hagsmunabaráttu og stuðningi. En þarf 48 manna aðalstjórn félagasamtaka, auk níu manna framkvæmdastjórnar, utan um heilbrigðisþjónustu sem ríkið fjármagnar fyrir milljarða? Það er spurning sem núverandi staða hlýtur að kalla á. Þegar átökin ná inn í meðferðarstarfið Sú spurning verður enn áleitnari í ljósi þess sem nú er að gerast. Lykilstjórnendur heilbrigðis- og meðferðarstarfs hafa horfið frá störfum, á sjöunda tug starfsmanna hefur lýst yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn og þrír starfsmenn á Vogi hafa farið í veikindaleyfi. Fráfarandi stjórnendur hafa jafnframt lýst áhyggjum af afskiptum stjórnar af faglegu starfi. Þetta eru alvarleg viðvörunarmerki sem ekki verður einfaldlega sópað undir teppið. Fólkið okkar á að vera í fyrsta sæti Á endanum snýst þetta nefnilega ekki um stjórnarmenn, framkvæmdastjóra eða átök innan félags. Þetta snýst um fólkið okkar; manneskjuna sem gengur inn um dyrnar á Vogi þegar hún ræður ekki lengur við líf sitt, móðurina sem bíður eftir símtalinu, föðurinn sem hefur vakað nótt eftir nótt og börnin sem vona að mamma eða pabbi komi heim aftur. Þau eiga rétt á því að kerfið sem tekur á móti þeim sé faglegt, stöðugt og öruggt. Ég vil öflugt meðferðarstarf fyrir fólkið okkar. Ég vil að fagfólkið sem þar vinnur geti unnið störf sín með faglegt sjálfstæði að leiðarljósi og ég vil geta treyst því að hver króna sem ætluð er þessari mikilvægu heilbrigðisþjónustu sé nýtt eins vel og mögulegt er. Það er ekki árás á SÁÁ að spyrja þessara spurninga. Þvert á móti. Þegar starfsemin er jafn mikilvæg og þessi og milljarðar af almannafé eru undir, eigum við að gera enn ríkari kröfur um gagnsæi, ábyrgð og góða stjórnarhætti. Nú bíðum við eftir svörunum. Og ég vona að þegar þau koma verði ekkert lengur yfirstrikað. Höfundur er aðstandandi og áhugamanneskja um fíknimeðferð og málefni fólks með fíknisjúkdóma. Heimildir • SÁÁ – Samþykktir SÁÁ • SÁÁ – Stjórn SÁÁ • Rótin – Kæra vegna afmáðra upplýsinga úr samningi Sjúkratrygginga Íslands við SÁÁ • Rótin – Viðbótargreinargerð við umsögn Sjúkratrygginga Íslands • Alþingi – Erindi SÁÁ til fjárlaganefndar, rekstraráætlun heilbrigðissviðs 2024 • RÚV – Þrír starfsmenn á Vogi komnir í veikindaleyfi, 15. september 2026 • RÚV – Á sjöunda tug starfsmanna SÁÁ lýsa yfir vantrausti, 11. september 2026 • RÚV – Um hvað snúast deilurnar innan SÁÁ?, 15. september 2026 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun