Efnilegastur í Bandaríkjunum: Slær Freddy Adu við Valur Páll Eiríksson skrifar 16. september 2026 07:01 Cavan Sullivan er aðeins 16 ára gamall en raðar inn mörkum og stoðsendingum. Hann hefur bætt rúmlega 20 ára gamlan árangur Freddy Adu. Getty Hinn 16 ára gamli Cavan Sullivan fer mikinn með Philadelphia Union í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta. Hann slær ungstirninu fræga Freddy Adu við.
Sullivan verður ekki 17 ára fyrr en 28. september næst komandi. Hann hefur þegar spilað 37 leiki fyrir Philadelphiu-liðið í MLS-deildinni og farið mikinn að undanförnu. Í leikjunum 37 hefur hann skoraði sex mörk og lagt upp ellefu. Tvö mörk hans í 5-0 sigri á Degi Dan Þórhallssyni og félögum í San Diego í vikunni þýddu hins vegar að Sullivan hefur skorað fimm mörk og gefið sjö stoðsendingar í síðustu sjö leikjum. Hann hefur því bætt met Adu yfir beina aðkomu að fjölda marka fyrir 17 ára aldur. Philadelphia hefur verið á mikilli siglingu með Sullivan fremstan í flokki að undanförnu þar sem liðið hefur unnið átta leiki og gert tvö jafntefli í tíu leikjum frá því að HM kláraðist í sumar. Sullivan spilaði sinn fyrsta leik í MLS-deildinni aðeins 14 ára og 243 daga gamall í júlí 2024, en þá bætti hann met Adu sem sá yngsti í sögu deildarinnar um 13 daga. Sullivan hefur heimild til að spila fyrir landslið Bandaríkjanna, Þýskalands og Bangladesh en hann hefur þegar spilað fyrir yngri landslið Bandaríkjanna og er þessa dagana orðaður við A-landsliðssæti. 12 - Since returning from the World Cup break, the #MLS leaders in goal contributions are Lionel Messi and Cavan Sullivan with 12 each.Messi made his 209th senior appearance for club and country on September 26, 2009, two days before Sullivan was born.Generational. pic.twitter.com/rQ79EaHPsh— OptaJack⚽️ (@OptaJack) September 15, 2026 Hann vonast í það minnsta eflaust eftir því að halda áfram að slá Adu við og ná lengra á sínum ferli en hinn heimsfrægi Freddy Adu gerði á sínum tíma. Sullivan er með klásúlu í samningi sínum sem segir til um að hann gangi í raðir Manchester City þegar hann verður 18 ára gamall og má því búast við honum á Englandi í lok næsta árs. Hver er Freddy Adu? Freddy Adu náði að spila 17 landsleiki fyrir Bandaríkin og vinna til þrenna silfurverðlauna á stórmótum. Adu er fæddur árið 1989 og var talinn einn allra efnilegasti fótboltamaður heims fljótlega eftir aldamót. Hann var víða kallaður næsti Pelé og gerði atvinnumannasamning við DC United í MLS-deildinni aðeins 14 ára gamall í janúar 2004. Öll stórlið Evrópu voru á eftir honum á tímabili og hann efstur á lista flestra fótboltatímarita þess tíma yfir efnilegustu fótboltamenn heims. Hann yfirgaf DC United 17 ára hafandi þegar spilað 87 leiki í MLS-deildinni og við tók mikið og heilt yfir misheppnað flakk um Evrópu. Honum tókst ekki að slá í gegn hjá Benfica í Portúgal og sneri aftur til Bandaríkjanna til að leika með Philadelphia Union árið 2011, hafandi leikið í Frakklandi, Grikklandi og Tyrklandi auk Portúgal. Ekki gekk frábærlega hjá Adu í Philadelphiu en honum tókst þó að spila 35 leiki og skoraí þeim sjö mörk milli 2011 og 2013. Aftur fór hann á flakk, þá 24 ára gamall, en átti aðeins eftir að leika 37 deildaleiki til viðbótar á sínum ferli; í Brasilíu, Serbíu, Finnlandi og neðri deildum Bandaríkjanna. Síðast var Adu samningsbundinn sænska þriðju deildarliðinu Österlen, sem hann samdi við 2021 eftir að hafa verið utan fótboltavallarins í tvö ár. Þar mætti hann illa á æfingar og spilaði aldrei fyrir félagið. Fótboltaferlinum var þar með lokið hjá 32 ára gömlum Adu. Honum tókst þó að verða MLS-meistari með DC United 15 ára gamall árið 2004 og skoraði tvö mörk í 17 landsleikjum fyrir Bandaríkin milli 2006 og 2011. Hann hlaut silfur í Álfukeppninni árið 2009 og silfur í Norður-Ameríkukeppninni með landsliðinu 2009 og 2011.
Bandaríski fótboltinn Bandaríkin Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira