Bob Mackie er látinn Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 15. september 2026 16:31 Goðsögnin Bob Mackie er látinn. Mel Melcon/Los Angeles Times via Getty Images Fata-og búningahönnuðurinn Bob Mackie lést í gærkvöldi, 87 ára að aldri. Hann á að baki sér glæstan feril sem spannar um fimmtíu ár og hannaði flíkur sem eru skrifaðar í tískusöguna um ókomna tíð.
Bob Mackie fæddist 24. mars árið 1939 í Kaliforníu þar sem hann bjó meginþorra ævi sinnar. Hann lést á heimili sínu í Palm Springs en ástin í lífi hans, íranski hönnuðurinn Ray Aghayan, lést fyrir fimmtán árum síðan. Þeir byrjuðu saman árið 1963 og náðu tæplega fimmtíu ára sambandi áður en Aghayen féll frá. Ray Aghayan og Bob Mackie stórglæsilegt par saman á góðri stundu árið 2008. Alexandra Wyman/WireImage Mackie hugsaði út fyrir kassann frá upphafi ferils og var þekktur fyrir mikinn glæsileika, pallíettur, fjaðrir og flíkur sem tóku pláss í senunni. Arfleifð hans er gríðarleg og er hann hvað þekktastur fyrir kjól sem hann hannaði á stórstjörnuna Marilyn Monroe árið 1962, þegar hún tók afmælissönginn fyrir þáverandi forseta John F. Kennedy. Þetta er líklega einhver frægasta flík 20. aldarinnar en raunveruleikastjarnan Kim Kardashian fékk að klæðast kjólnum á Met Gala-hátíðinni 2022 og var Mackie ekki par hrifinn af þeirri ákvörðun. Marilyn Monroe söng afmælissönginn fyrir John F. Kennedy árið 1962 í kjól frá Bob Mackie. Er um að ræða einhvern frægasta kjól sögunnar. Getty/Bettmann Hann vann náið með stórstjörnum sem hafa jafnan verið þekktar fyrir einstaklega glæsilegan klæðaburð, eins og söng- og leikkonan Cher. Hennar þekktustu flíkur eru úr hans smiðju, þar á meðal svart, glitrandi og óviðjafnanlegt sett sem hún klæddist á Óskarnum. Cher á Óskarnum 1986 í sögulegum fötum frá Bob Mackie. Jim Smeal/Ron Galella Collection via Getty Images Þá hannaði Mackie búninga fyrir leiksýningar og kvikmyndir og gerði Barbie dúkkur heimsins að tískudrottningum í samstarfi sínu við Mattel.
Andlát Hollywood Tíska og hönnun Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira