Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. september 2026 22:49 Jón Birgir Jónsson nýráðinn forstjóri Kviku banka hefur lengi starfað erlendis. Samsett Stjórn Kviku banka hefur ráðið Jón Birgir Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri bankans. Hann mun taka við starfinu af Ármanni Þorvaldssyni þann 1. desember næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku banka en þar segir að Jón búi yfir mikilli reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hafi stærstan hluta starfsferils síns starfað erlendis hjá tveimur af stærstu eignastýringarfyrirtækjum heims. Jón hafi lokið grunnnámi í stærðfræði við Háskóla Íslands og framhaldsnámi í fjármálaverkfræði við New York University. „Á árunum 2013 til 2025 starfaði Jón Birgir hjá Neuberger Berman í London, þar sem hann var einn af eigendum félagsins og gegndi stjórnendastöðu. Hann kom til félagsins til að styrkja starfsemi þess á sviði alþjóðlegra skuldabréfafjárfestinga og sinnti síðar í auknum mæli samskiptum við fag- og stofnanafjárfesta.“ Þar áður hafi hann starfað hjá J.P. Morgan Asset Management frá árinu 1998, bæði í New York og London, sem sjóðstjóri með áherslu á skuldabréf og alþjóðlega vaxtamarkaði. Þrátt fyrir að hafa starfað lengi erlendis hafi Jón haldið sterkum tengslum við íslenskt atvinnulíf, meðal annars sem stjórnarformaður í Bresk-íslenska viðskiptaráðinu. Umfangsmikil reynsla og alþjóðleg tengsl muni nýtast vel „Ég er fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Þetta er virkilega spennandi verkefni og bankinn er einstaklega vel í stakk búinn til áframhaldandi sóknar, með góða innviði, sterkan efnahagsreikning og framúrskarandi starfsfólk. Markmið okkar er og verður áfram að veita viðskiptavinum okkar öfluga fjármálaþjónustu,“ er haft eftir Jóni í tilkynningunni. Eins og fyrr sagði tekur Jón Birgir við starfinu af Ármanni Þorvaldssyni, en hann tilkynnti í júní að hann hygðist láta af störfum sem forstjóri bankans. Ármann tók við sem forstjóri Kviku árið 2017, var um tíma aðstoðarforstjóri félagsins og hefur síðan aftur gegnt stöðu forstjóra síðastliðin þrjú ár. Haft er eftir Sigurði Hannessyni stjórnarformanni Kviku að Ármann eigi miklar þakkir skildar fyrir hans mikilvæga framlag til bankans. „Það er ánægjulegt að fá Jón Birgi í öflugt lið Kviku. Umfangsmikil reynsla hans af fjármálamörkuðum og sterk alþjóðleg tengsl munu nýtast Kviku vel í áframhaldandi þróun bankans. Um leið vil ég þakka Ármanni Þorvaldssyni fyrir mikilvægt framlag hans til Kviku. Á forstjóratíð hans hefur bankinn vaxið verulega og þróað öflugan og fjölbreyttan rekstur. Fyrir þann árangur á Ármann, ásamt öllu því öfluga starfsfólki sem lagt hefur sitt af mörkum á þessari vegferð, miklar þakkir skildar,“ er haft eftir Sigurði.
Vistaskipti Kvika banki Fjármálafyrirtæki Mest lesið „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Sjá meira