NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Lovísa Arnardóttir skrifar 11. september 2026 13:16 Tímamót hjá Dale Carnegie. Aðsend NTV Promennt hefur keypt rekstur Dale Carnegie á Íslandi. Unnur Magnúsdóttir segir engan missa vinnuna og félögin verði rekin sem eins konar systurfélög undir sama eignarhaldi. Unnur keypti reksturinn árið 2006 en hefur starfað á vegum Dale Carnegie í 25 ár. Hún segir um mikil tímamót að ræða.
Unnur verður áfram ein af lykilmanneskjum í stjórnendateymi Dale Carnegie á Íslandi. Hún hefur í 25 ár gegnt lykilhlutverki í ráðgjöf, samskiptum og leiðtogaþjálfun fyrir viðskiptavini Dale Carnegie. „Ég er gríðarlega spennt fyrir þessum nýja kafla sem fram undan er og hlakka til að eiga samtal við viðskiptavini okkar á breiðari grunni. Ég vona að með því getum við mætt þörfum þeirra enn betur og veitt þeim enn öflugri þjónustu,“ segir Unnur. Jón Jósafat Björnsson verður áfram hjá Dale Carnegie sem sölustjóri fyrst um sinn en mun á næsta ári færa sig yfir í fagráð Dale Carnegie á Íslandi. „Dale Carnegie á sér langa og farsæla sögu á Íslandi og við leggjum mikla áherslu á að byggja áfram á þeim sterka grunni sem fyrir er. Jafnframt sjáum við mikil tækifæri í því að nýta styrkleika NTV Promennt og Dale Carnegie þannig að félögin verði saman sterkari og geti boðið enn breiðari þjónustu,“ segir Skúli Gunnsteinsson, sem verður framkvæmdastjóri Dale Carnegie á Íslandi samhliða starfi sínu sem framkvæmdastjóri NTV Promennt. Heldur áfram sem sjálfstæð eining Í tilkynningu um kaupin kemur fram að Dale Carnegie haldi áfram sem sjálfstæð rekstrareining og sjálfstætt vörumerki, en félögin fá tækifæri til að nýta styrkleika hvors annars og byggja upp enn öflugri þjónustu við stjórnendur, fyrirtæki og einstaklinga. Þar kemur einnig fram að Dale Carnegie hefur verið starfandi á Íslandi í meira en 60 ár. NTV Promennt er á sínu 30. starfsári. Ár hvert nýti um 6.000 manns náms- og þjálfunartengda þjónustu félaganna tveggja. „Með félögin undir sama eignarhaldi skapast tækifæri til að nýta þekkingu, innviði og styrkleika þeirra beggja, án þess að skerða sjálfstæði eða sérstöðu Dale Carnegie,“ segir í tilkynningu og að mikil samfella verði í starfsemi Dale Carnegie við kaupin. Allir ráðgjafar og þjálfarar félagsins verði áfram.
Vistaskipti Tengdar fréttir Leiðtogaþjálfun: „Þetta er eins og taka til í geymslunni“ „Þetta er eins og taka til í geymslunni; henda út hlutum sem við viljum ekki nota og setja inn nýtt,“ segir Jón Jósafat Björnsson meðal annars um þau tuttugu atriði sem eru nefnd sérstaklega í leiðtogaþjálfun Dale Carnegie, sem unnið var í samvinnu við Marshcall Goldsmiths. 1. mars 2024 07:01 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira
Leiðtogaþjálfun: „Þetta er eins og taka til í geymslunni“ „Þetta er eins og taka til í geymslunni; henda út hlutum sem við viljum ekki nota og setja inn nýtt,“ segir Jón Jósafat Björnsson meðal annars um þau tuttugu atriði sem eru nefnd sérstaklega í leiðtogaþjálfun Dale Carnegie, sem unnið var í samvinnu við Marshcall Goldsmiths. 1. mars 2024 07:01