Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Aron Guðmundsson skrifar 10. september 2026 12:00 Aron Pálmarsson, þjálfari FH og Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar mætast í stórleik kvöldsins í Olís deild karla í handbolta Vísir/Samsett Afturelding tekur á móti FH í stórleik kvöldsins í Olís deild karla í handbolta og reynir um leið að slá hinn fullkomna tón fyrir sögulegan dag fyrir félagið á morgun.
Afturelding þurfti að bíða óvenju lengi eftir sigri sínum gegn nýliðum Víkings Reykjavíkur í fyrstu umferð deildarinnar. Ástæðan sú að ekki var hægt að klára leikinn fyrr en um tveimur dögum eftir að hann var flautaður á sökum rafmagnsleysis í Mosfellsbæ. Þið hljótið að vonast til þess að geta byrjað og klárað leikinn gegn FH í kvöld? „Það væri skemmtilegra,“ segir Hrannar Guðmundsson, annar af þjálfurum Aftureldingar í samtali við Vísi. „Þetta var eins og alvöru krikket leikur í lengd þessi leikur á móti Víkingum. Ég ætla að vona að við náum að spila þennan leik og taka tvisvar sinnum þrjátíu mínútur í kvöld. Við erum við öllu búnir.“ Þetta hlýtur að hafa verið áskorun að þurfa spila leikinn í tveimur mismunandi hollum með góðan tíma á milli? „Algjörlega. Það var sérstakt. Svona er bara lífið, svona getur gerst. Nú er maður búinn að prufa þetta. Þetta var flottur leikur hjá okkur á móti Víkingum, sér í lagi fyrri hálfleikurinn. Við hefðum geta unnið leikinn stærra. Það var skrítið að koma inn í seinni hálfleikinn tveimur dögum síðar, auðveldara fyrir þá að mótivera sig jafnvel í það. Mér finnst gróður bragur á liðinu og lýst ótrúlega vel á þetta. Við erum með skemmtilegan hóp í höndunum, metnaðarfullan hóp sem er tilbúinn að leggja mikið á sig. Við höfum æft vel og komum vel gíraðir inn í leik kvöldsins.“ Framundan stórleikur gegn FH-ingum Arons Pálmarssonar í kvöld á heimavelli en FH hafði betur gegn Stjörnunni í fyrstu umferð deildarinnar. „Mér lýst hrikalega vel á þetta. FH er með frábært lið. Hafa sýnt það á undanförnum árum og núna á undirbúningstímabilinu að þetta er hörku lið. Þeir hafa farið í gegnum leikmanna- og þjálfarabreytingar, þetta er hrikalega verðugt verkefni og mér lýst vel á þetta. Það verður gaman í Varmá í kvöld.“ Frá leik FH og Stjörnunnar í fyrstu umferð Olís deildarinnarVísir/Pawel Þjófstart í Mosfellsbæ Enda risa leikur framundan fyrir Mosfellsbæ annað kvöld þegar að Afturelding, sem tryggði sér nýlega sæti í Bestu deildinni, mætir Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli. Evrópusæti undir og möguleiki á fyrsta bikarmeistaratitlinum. „Stór helgi hjá okkur Mosfellingum. Fótboltinn í bikarúrslitum á morgun og frábært fyrir Mosfellinga og Aftureldingarmenn að þjófstarta þessari veislu með toppslag í handboltanum í kvöld. Hvort sem það eru bikarúrslit í fótbolta eða handbolta, úrslitaleikir yfir höfuð, þá hafa Mosfellingar sannað það og sýnt að þeir flykkjast á völlinn og eru reiðubúnir í að standa á bak við sín lið sama hvort það sé í blíðu eða stríðu. Ég hef engar áhyggjur. Við fyllum okkar hluta stúkunnar á morgun, setjum tóninn í kvöld og klárum þetta á morgun.“ Einn efnilegasti þjálfari í heimi Hvernig lýst þér á þá áskorun að mæta Aroni Pálmarssyni í kvöld á hliðarlínunni? „Það er frábært. Aron er örugglega einn efnilegasti þjálfarinn í heiminum í dag og einn besti leikmaðurinn á heimsvísu í sögu handboltans. Heiður að mæta honum og reyna skáka og máta hann.“ Aron Pálmarsson er þjálfari FHvísir / anton „Við þurfum að spila hörku vörn til þess. FH er með hrikalega flott sóknarlið. Með frábærlega mannað lið, með mikið af einstaklingsgæðum og eru vel drillaðir og góðir. Þeir keyra mjög mikið upp völlinn, spila smá spænska vörn með beinskeytta bakverði. Þetta er lið sem er með allan pakkann. Við þurfum að spila vel á öllum vígstöðvum til að vinna þennan leik.“ Leikur Aftureldingar og FH í 2. umferð Olís deildar karla í handbolta spila í Myntkaup höllinni í Mosfellsbæ hefst klukkan korter yfir átta í kvöld og verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild karla FH Afturelding Mjólkurbikar karla Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira