Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Sindri Sverrisson skrifar 8. september 2026 12:00 Sigurður Hjörtur Þrastarson er einn af betri dómurum landsins. Vísir/Anton Brink Andreas Hellum, framherji Lyn í Noregi, fékk útrás fyrir mikinn pirring yfir dómurum og vallaraðstæðum þegar hann var spurður út í vítadóm Sigurðar Hjartar Þrastarsonar í leik á sunnudaginn.
Það var íslenskur bragur á 1-1 jafntefli Lyn við Egersund í norsku 1. deildinni í fótbolta. Hinrik Harðarson skoraði nefnilega mark gestanna frá Egersund, úr vítaspyrnu sem Sigurður dæmdi. Sigurður, sem þykir einn besti dómari Bestu deildarinnar, sá um að dæma leikinn vegna norræns samstarfs þar sem dómarar fara á milli landa til að dæma. Í viðtali við TV 2 var Hellum spurður út í íslenska dómarann, og hvort að „starfsþjálfunarverkefnið“ væri svolítið pirrandi, en hellti þá úr skálum reiði sinnar: Kan du gi meg et eksempel på å snakke rett fra levra? pic.twitter.com/C5bhsXWrLF— Espensen (@Espen____) September 7, 2026 „Þeir eru jafn ömurlegir þessir norsku dómarar,“ sagði Hellum áður en hann beindi spjótum sínum að heimavelli félagsins síns: „Völlurinn er ömurlegur, auðvitað. Eftir að hafa aldrei verið jafn góður og í síðasta heimaleik þá er hann næstum því sá versti á árinu aftur í dag, svo það er náttúrulega frábært. Við fáum ekki einu sinni að æfa hérna daginn fyrir leik því það var eitthvað drasl hérna í gær, svo það er bara... Þetta er búið að vera svona alveg síðan ég kom og þetta mun örugglega halda svona áfram í mörg ár í viðbót. Þar sem við erum ekki í forgangi, svo þá... Það er ekkert hægt að gera í því,“ sagði Hellum. Þess má geta að fleiri Íslendingar komu við sögu í leiknum því Þorlákur Brexi Baxter, nýkominn til Egersund frá Keflavík, kom inná sem varamaður á 80. mínútu.
Norski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira