Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Andri Broddason skrifar 8. september 2026 08:31 Tara Davis-Woodhall keppir ekki meira á tímabilinu en hún er langt frá því að gefast upp. Meg Oliphant/Getty Images Ólympíumeistarinn í langstökki, Tara Davis-Woodhall, hefur ákveðið að keppa ekki meira á þessu tímabili eftir árekstur. Hún fékk slæman heilahristing sem hefur haldið henni frá æfingum.
Í gær birti Tara Davis-Woodhall færslu þar sem hún tjáði að hún myndi ekki keppa meira á árinu 2026. Þetta er áfall fyrir hana enda er hún á toppi ferilsins þessa stundina. Hún varð Ólympíumeistari í langstökki í París árið 2024 og varð heimsmeistari í langstökki ári seinna. Í færslunni sinni á Instagram lagði hún þó áherslu á að hún myndi koma til baka og að allt gerðist af ástæðu. View this post on Instagram A post shared by Tara Davis-Woodhall OLY (TDW) (@_taarra_) „Ég veit að þetta verður að vera hluti af minni sögu. Ég mun aldrei efast um leiðirnar sem Guð setur fyrir framan mig. ÉG MUN KOMA TIL BAKA.“ Fyrir innan við viku deildi Davis-Woodhall því að hún hafi lent í árekstri sem hafði andleg áhrif á hana en hún slapp við lífshættuleg meiðsli. Hún fékk þó slæman heilahristing sem hefur verið erfitt að jafna sig á. Samkvæmt nýju færslunni hennar virðist hún þó vera staðráðin í að yfirstíga vandræðin og koma til baka. World Athletics Ultimate Championship verður haldið í fyrsta skipti um helgina. Þar koma saman Ólympíumeistarar, heimsmeistarar og meistarar Demantsmótaraðarinnar og keppa í sínum greinum. Davis-Woodhall mun því missa af þessu móti en búist er við að allar helstu stjörnur frjálsíþróttaheimsins mæti.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Lebron talaði hreint út Körfubolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Handbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Elvar með sex mörk í toppslagnum Handbolti „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Fótbolti Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Fótbolti Fleiri fréttir Lebron talaði hreint út Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Kristall fékk tveggja leikja bann Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Megum ekki detta niður á þeirra plan „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Minden keypti Erling af ÍBV Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi „Hluti af vegferðinni“ UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Dagskráin í dag: Belgía tekur á móti stórliði Frakklands Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Sjá meira