Vara við snörpum hviðum Agnar Már Másson skrifar 6. september 2026 07:25 Veðurstofan varar við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum í kvöld. Vísir/Vilhelm Veðurstofan varar við snörpum vindhviðum við fjöll sunnan- og suðaustantil á landinu í kvöld, einkum undir Vatnajökli en einnig undir Eyjafjöllum. Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig, mildast suðvestanlands, í dag.
Í veðurspá og hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að suður í hafi sé fremur víðáttumikil lægð sem stefni ört í átt að landi og í dag verði vaxandi norðaustan- og austanátt víða um land. Síðdegis verði yfirleitt 8-15 m/s, hvassast suðaustanlands, en í kvöld er útlit fyrir norðaustan 15-20 m/s undir Vatnajökli og fer þá að rigna suðaustan- og austanlands. Útlit er þó fyrir að hviður gætu farið yfir 20 m/s við fjöll á Suður- og Suðausturlandi, einkum í Öræfum. Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig, mildast suðvestanlands. Eftir hádegi á mánudag fer að draga hægt úr vindi og úrkomu á svæðinu, að sögn veðurfræðings, en áfram verður hvasst suðaustan- og austantil fram á kvöld. Í öðrum landshlutum er hægari vindur, yfirleitt norðan 8-13 m/s, en heldur hvassara inn til landsins. Það lægi svo víða norðanlands með kvöldinu. Í norðanáttinni kólnar heldur norðan- og austanlands, en áfram verður milt sunnan heiða, að sögn Veðurstofu. Stefnir í sólríkan þriðjudag Bent er á að það stefni í sólríkan og fremur hlýjan þriðjudag um mest allt land, með fremur hægum suðlægum eða breytilegum áttum, en strekkingi norðvestanlands síðdegis. Um og eftir miðja vikuna verði svo útlit fyrir lægðagang og vætusamt veður með köflum í flestum landshlutum.
Veður Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Sjá meira