Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar 4. september 2026 06:30 Ef list er afkvæmi hugsana minna, skiptir þá máli hvernig þær hugsanir eru framkallaðar? Þetta er spurning sem margir spyrja sig ábyggilega þessa dagana þegar litið er á þróun gervigreindar. Spurningin er ekki ný og hefur komið fram í hvert skipti þegar fram kemur tækni sem snertir flöt listrænnar sköpunar. Bubbi Morthens hefur oft haft rétt fyrir sér, en líka sennilega næstum jafn oft haft rangt fyrir sér, og því er rétt að skoða hvort fuglinn sé floginn og við föst á bak við veggi martraðar gervigreindarinnar. „From today, painting is dead!“ „Frá þessum degi er málverkið dautt!“ er haft eftir franska listmálaranum Paul Delaroche í kringum 1839–1840 þegar hann sá fyrstu daguerreótýpurnar. Ljósmyndun og tækni hennar hafði hafið innreið sína í líf manna og lýðnum leist ekkert á. Bubbi Morthens hræðist gervigreindina og áhrif hennar á listsköpun á svipaðan hátt og talar á svipuðum nótum. Það er ekkert rangt við það að hafa áhyggjur og raunar rétt að hafa áhyggjur af nýrri tækni þegar menn vita ekki með vissu hvert slík tækni stefnir heiminum. Það er samt margt sem ég óttast meira við gervigreindina en áhrif hennar á listsköpun, því gervigreindin er svolítið eins og Dr. Jekyll and Mr. Hyde. Þannig var sagt að ljósmyndin gæti ekki verið list sökum þess mekaníska eiginleika ljósmyndarinnar sem þurfti að eiga við til þess að búa til eitthvað með ljósmyndatækni. Árið 1859 skrifaði skáldið Charles Baudelaire í ritdómi um Salon: „Ef ljósmyndun fær að fylla upp í sum hlutverk listarinnar, mun hún fljótlega koma í staðinn fyrir hana eða spilla henni algjörlega…“ Þrátt fyrir allt hafa áhrif myndavélarinnar og ljósmyndunar ekki verið þau að eyðileggja málverkið eða eyða listinni, heldur þvert á móti. Tæknin getur breytt hugsun en hún eyðir henni ekki. Það er alveg rétt hjá Bubba að vera hugsi um gervigreindina og áhrif hennar á sköpun, en ég er ekki endilega sammála honum um að gervigreindin komi til með að eyðileggja sköpunargáfuna. Bubbi, sem sjálfur hefur barist við les- og skriförðugleika, ætti að vita að með hjálp talgreindar eru til dæmis möguleikar þeirra sem vilja koma hugsunum sínum á framfæri orðnir fleiri, þó talgreindin sé ekki fullkomin í íslenskunni. Að skrifa texta og halda flæði getur verið flókið þegar heilinn er meira að spá í hvort stafsetningin og orðnotkunin séu rétt eða ekki. Það getur því eyðilagt flæði og sköpunarferli, eða listrænt ferli, sem er í gangi. Þar af leiðandi getur verið gott að geta leitað til gervigreindarinnar og talað við hana í stað þess að vera endalaust að skrifa á blað eða lyklaborð með tilheyrandi veseni. Þó forrit eins og WhisperFlow séu ekki óskeikul geta þau samt verið góð til þess að hjálpa þér að koma töluðum orðum í ritað mál. Þegar þú svo hefur fært talað mál yfir í ritmál má nota gervigreind eins og ChatGPT eða Claude til þess að yfirfara textann og leiðrétta stafsetningu. Þar af leiðandi fer allt eftir því hvernig maður notar gervigreindina hvort hægt sé að líta á hana sem skemmdarverkatól á listræna hugsun eða enn eitt tækið til að hjálpa þér við listræna sköpun. Þegar rætt er um sköpun og listrænt ferli koma upp í hugann menn eins og Þorvaldur Þorsteinsson og Ólafur Eliasson. Listamenn sem hafa notað aðra til þess að búa til verk sem þeir þó hugsuðu og sköpuðu. Það hefur enginn efast um að þeir teljist listamenn og höfundarverkið væri þeirra. Gildir þá öðru máli ef menn nota gervigreindina? Stóra spurningin er hvort það sé sköpun ef ég gef gervigreind nákvæma lýsingu á því hvað ég vil, hver útkoman eigi að vera og hvernig hún eigi að líta út? Er það list? Og ef ekki, af hverju var það þá list þegar listamenn sögðu öðrum aðilum hvað þeir vildu, hvernig það ætti að líta út og eftir hverju þeir voru að leita? Er öðruvísi að nota menn en mús til verksins? Ef við látum liggja á milli hluta hvað telst list og reynum að skoða bara sköpun, þá verður lífið töluvert listrænna. Í þessu sambandi held ég reyndar að nútímatækni, ef hún gerir eitthvað, geti í rauninni ýtt undir að menn eins og Bubbi Morthens og aðrir listamenn sem gera sitt á sínum forsendum fái aukna athygli. Og þannig má segja að í tónlistinni, rétt eins og í ljósmyndinni, séu líkur á því að gervigreindin muni í reynd fría formið frá iðnaði og yfir í list, svo lengi sem mannskepnan hefur lokaákvörðun um það hvað birtist eða fer út í kosmóið. Kannski gerist það loksins að listamenn, sem eru hugsandi og skapandi, fái meiri athygli en nú er. Í því samhengi þarf samt að skoða hvort hætta sé á breytingum og hvort tölvur eða bottar sjái í framtíðinni um allt ferlið frá A til Ö. Ef enginn mennskur kemur þar nærri erum við farin að tala um allt aðra hluti. Þá þurfum við að snúa okkur að skilgreiningunni og stóru spurningunni. Hvað er list? Hvað er sköpun? Getur gervigreind skapað list? Er list eitthvað ef engin hugsun er að baki? Getur eitthvað talist list án hugsunar? Lady Elizabeth Eastlake (1857) færði rök fyrir því að ljósmyndun væri ekki fínlist vegna þess að hún væri vélræn og skorti „frjálsan vilja“ listamannsins. Ég tel það samt til efs að einhver í nútímanum efist um bæði Ragnar Axelsson og Spessa sem listamenn, þó þeir nálgist miðilinn á mismunandi hátt en með sams konar ljósmyndatækni. Skilgreinir tæknin listina eða listin tæknina? Er list aðeins frjáls ef hún notar enga tækni? Mín skoðun er sú að gervigreindin muni frelsa hina ýmsu list sem og handverk, sem hingað til hefur verið svolítið hornreka. List og handverk koma örugglega til með að fá aukið vægi í framtíðinni, og ég sé það þegar innan ljósmyndunar þar sem ungt fólk er farið að fá áhuga á filmuljósmyndun. Við fáum kannski að sjá fleiri listamenn og fáum á ný ýmsa list fram á sjónarsviðið sem hefur farið hljótt undanfarið þar sem hún krefst mannlegrar færni og agaðra vinnubragða. List eins og grafíklist, silkiprent, ljósmyndun á filmu og fleira. Allt þetta er að koma til baka og jafnvel sameinast í nútímasýningu eins og Bensín Revisited eftir Spessa, sem nú nýlega var sýnd í Svíþjóð. Þannig verður gervigreindin kannski til þess að menn hugsa öðruvísi, hugsa út fyrir boxið og áherslan verður önnur. „…ljósmyndun getur aldrei náð hærri stöðu en grafíklist, svo lengi sem uppfinning og tilfinning eru nauðsynlegir eiginleikar listaverks.“ – Tímaritið The Crayon, 1855 Gervigreindin mun ekki frekar en ljósmyndin eyðileggja listræna sköpun, heldur mun hún ýta undir það að fleiri geti skapað og fleiri geti komið hugsunum sínum á framfæri. Slíkt er þó háð því að til staðar sé mannleg stjórnun og mannleg hugsun. Innantóm gervigreindin er ekki spennandi. Það er lítið mál í dag að fara á vefsvæði eins og Suno og biðja um eitt stykki kántrýlag eða rokk og ról um stól upp á hól, en hvers virði er það? Ég tel mig geta barið saman texta og jafnvel haft í honum innihald og spurningar og því vaknar spurningin hvort ég geti skapað list ef hugsunin er mín. Hljómagangurinn er minn. Textinn saminn af mér en gervigreindin vinnur úr skipunum sem ég gef henni og skapar þannig heildarumgjörðina sem ég að endingu er sáttur við og get sett fram sem mitt verk. Mitt lag. Minn Þorvaldur. Minn Ólafur. Er þá munur á listamanninum Bubba Morthens og Kristjáni Logasyni annar en sá að Bubbi getur flutt eigin hugverk en ég þarf til þess hjálp svo ég æri ekki óstöðugan með söng sem fær hunda til að ýlfra? Hjálp sem gervigreindin getur veitt mér. Spyrji ég hins vegar gervigreindina um að búa til lag eins og Bubbi gerir er ég nokkuð viss um að úr þeirri beiðni kæmi eintóm þvæla. Gervigreindin getur tekið öll lög og texta Bubba og hent þeim í einn pott, en ég er hræddur um að úr þeim potti kæmi aðeins brimsaltur, viðbrenndur miðjumoðingur án allrar hugsunar og engum til ánægju. Það syngur enginn eins og Bubbi. Það hugsar enginn eins og Bubbi og það skrifar eða semur enginn eins og Bubbi. Sumt er ekki hægt að stæla né stela, ekki einu sinni með spunavélum gervigreindar, því listin verður ekki til úr engu. List er afkvæmi hugsana. Afkvæmi hugsana minna hlusta ekki lengur á mighalda fyrir mér vöku og vilja láta annast sig.Ég vaknaði um óttu við uggvænan draumóm af röddum heyrði ég berast.Ég kafaði vökunnar kalda straumog kallaði: Hvað er að gerast Höfundur er ljósmyndari með áhuga á gervigreind Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun