Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar 3. september 2026 16:02 Norska stjórnarskráin heimilar framsal ríkisvalds á afmörkuðu sviði, en reisir því háan þröskuld. Íslenska stjórnarskráin hefur enga sambærilega heimild. Samt hefur Alþingi ítrekað samþykkt valdframsal með einföldum meirihluta og stuðst við lögfræðiálit frá 1992. Munurinn birtist skýrt í meðferð ríkjanna á þriðja orkupakkanum, fjármálaeftirliti ESB og nú Bókun 35. Norðmenn eru varkárir menn. Árið 1962 settu þeir sérstakt ákvæði í stjórnarskrá sína um framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana. Ákvæðið hét áður 93. gr. en er nú 115. gr. Samkvæmt því getur Stórþingið framselt vald á afmörkuðu sviði ef þrír fjórðu hlutar þingmanna samþykkja það og að minnsta kosti tveir þriðju þeirra eru viðstaddir. Stjórnarskrá Íslands Í 2. gr. íslensku stjórnarskrárinnar segir að Alþingi og forseti fari saman með löggjafarvaldið, forseti og önnur stjórnvöld með framkvæmdarvaldið og dómendur með dómsvaldið. Þar er engin heimild þar til að fela erlendum eða yfirþjóðlegum stofnunum ríkisvald. Þögn stjórnarskrárinnar hefur þó reynst stjórnvöldum afar þægileg. Í stað stjórnarskrárákvæðis hefur álitsgerð fjögurra lögfræðinga frá 6. júlí 1992 orðið helsta stoðin. Þar var talið að framsal gæti samrýmst stjórnarskránni væri það afmarkað, á takmörkuðu sviði, hóflegt og afturkræft. Matið er síðan í höndum sama þingmeirihluta og vill samþykkja framsalið. Fyrirkomulagið minnir á að ökumanni væri falið að úrskurða hvort hann hefði sjálfur ekið of hratt. Þriðji orkupakki ESB Munurinn kom skýrt fram við innleiðingu þriðja orkupakkans. Stórþingi Noreg samþykkti hann 22. mars 2018 eftir harðar deilur. Samtökin Nei til EU höfðaði mál gegn norska ríkinu og í október 2023 fjölluðu sautján hæstaréttardómarar um hvort málsmeðferðin hefði brotið gegn stjórnarskránni. Dómurinn taldi svo ekki vera, en framsal ríkisvalds til ACER var viðurkennt og stjórnarskrárspurningin tekin alvarlega. Alþingi Íslendinga samþykkti pakkann árið 2019. Þar vó þungt að enginn sæstrengur tengdi Ísland við innri raforkumarkað Evrópu. Stjórnskipulegum vanda var þannig ýtt til hliðar þar til strengur kynni að verða lagður. Íslenska niðurstaðan varð í reynd sú að valdframsalið gæti beðið eftir sæstrengnum. Bókun 35 Bókun 35 dregur fram sama mun á Íslandi og Noregi. Norðmenn lögfestu almenna forgangsreglu EES-réttar árið 1992. Á Íslandi var valin lögskýringarregla: Skýra skyldi lög, að svo miklu leyti sem við ætti, til samræmis við EES-samninginn. Orðalagið endurspeglaði þau stjórnskipulegu mörk sem talið var að giltu við lögfestingu samningsins. Þetta fyrirkomulag hefur dugað okkur í yfir 30 ár! Nú er lagt til að EES-reglur, sem þegar hafa verið innleiddar, gangi framar öðrum settum lögum ef árekstur verður. Þar með yrði stigið skref sem var talið stjórnskipulega ófært árið 1993 án breytingar á stjórnarskránni. Frumvarpið hefur verið endurflutt fjórum sinnum, síðast 18. september 2025. Meirihluti utanríkismálanefndar afgreiddi það úr nefnd í ágreiningi í desember sama ár. Sagan endurtekur sig Svipað gerðist þegar vald fjármálaeftirlitsstofnana ESB var innleitt árið 2016. Norðmenn beittu 115. gr. og kröfðust aukins meirihluta. Alþingi lét einfaldan meirihluta nægja með vísan til þess að framsalið væri afmarkað. Heimildir erlendra stofnana á sviði efnahagsmála, flugöryggis, fjármálaeftirlits og persónuverndar geta þó varðað íslenska borgara og fyrirtæki með beinum hætti. Þarna skilur á milli tveggja stjórnskipulegra viðhorfa. Í Noregi ræður eðli valdframsalsins því hvaða málsmeðferð er viðhöfð, auk þess sem dómstólar geta endurskoðað niðurstöðuna. Á Íslandi ákveður þingmeirihlutinn sjálfur hvort framsalið sé nægilega lítið til að komast fyrir innan álitsgerðarinnar frá 1992. Því duga orðin „Noregur hefur samþykkt þetta“ skammt. Þar er valdframsalið sýnilegt og bundið við stjórnarskrárákvæði sem krefst sérstakrar málsmeðferðar. Hér á landi nægir einföld handaupprétting, studd áratugagömlu lögfræðiáliti sem þjóðin hefur aldrei samþykkt. Höfundur er læknir og sjálfskipaður fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Bókun 35 EES-samningurinn Noregur Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar