Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar 3. september 2026 18:00 Þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að hún vilji ekki draga formlega til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, vaknar grundvallarspurning um þýðingu beins lýðræðis. Ef ríkisstjórn leggur fram stórt stefnumál, biður þjóðina um svar og fær það svar — en telur sig samt geta haldið ferlinu áfram — þá vaknar spurning sem er stærri en einstök umsókn: Hvert er pólitískt gildi þjóðaratkvæðagreiðslu ef ríkisstjórn getur lagt mál fyrir þjóðina, beðið um svar hennar og fengið það – skýrt or skorinort nei — en síðan látið eins og ekkert sé? Þjóðaratkvæðagreiðsla er ekki skoðanakönnun. Slík atkvæðagreiðsla felur kjósendum beint ákvörðunarvald um tiltekið mál. Spurningin sem nú vaknar á Íslandi snýst ekki um það hvort ríkisstjórnin hafi lagalegan rétt til að sitja áfram – það hefur hún. Spurningin snýst um pólitíska ábyrgð og traust. Þegar ríkisstjórn gerir eitt mál að sínum meginmarkmiðum, fjárfestir í því verulegt pólitískt og stjórnsýslulegt afl og leggur svo fyrir þjóðina — aðeins til að fá skýrt nei — vakna eðlilega spurningar um viðbrögðin við slíkum úrslitum. Fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var endurupptaka aðildarviðræðna við Evrópusambandið ekki smávægilegt utanríkisstefnumál, heldur eitt af helstu pólitísku markmiðum stjórnarinnar. Það hafði í för með sér verulegan pólitískan og diplómatískan kostnað, að ekki sé minnst á hinn fjárhagslegan kostnað fyrir íslenska skattgreiðendur. Landskjörstjórn áætlaði kostnað við sjálfa þjóðaratkvæðagreiðsluna um 500–600 milljónir króna, án þess að þar sé talinn allur annar kostnaður sem fylgdi diplómatísku starfi og samskiptum stjórnvalda við Evrópusambandið. Málið var eitt af stærstu pólitísku markmiðum stjórnar Kristrúnar Frostadóttur og sérstaklega mikilvægt fyrir Viðreisn og formann flokksins, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Þess vegna verður niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar ekki einfaldlega túlkuð sem höfnun á einni tillögu, heldur sem höfnun á ákveðinni pólitískri stefnu. Ríkisstjórn sem biður þjóðina um umboð í meiri háttar stefnumáli biður hana um að treysta mati sínu og forystu. Þegar kjósendur hafna því snýst málið ekki lengur aðeins um sjálfa stefnuna, heldur um hvort stjórnmálaleiðtogar skilji vægi þess svars sem þeir hafa fengið. Í Bretlandi skapaði þjóðaratkvæðagreiðslan um Brexit þegar í stað pólitíska leiðtogakreppu vegna þess að forsætisráðherrann hafði gert áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu að meginstoð kosningabaráttu sinnar. Hvaða vægi á bein afstaða þjóðarinnar að hafa? Þetta vekur óhjákvæmilega spurningar um tilgang þjóðaratkvæðagreiðslunnar sjálfrar. Ef kjósendur eru kallaðir til að gefa skýrt svar um stefnumarkandi mál, en niðurstaðan hefur engin áhrif á þá stefnu sem stjórnvöld hyggjast fylgja, hvaða vægi hefur þá beint lýðræðislegt umboð þjóðarinnar? Ef marka má viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, er svarið einfalt: Ekkert. Látum sem ekkert sé. Þegar kosið var um að hefja ferlið að nýju studdu 29 þingmenn það, 30 voru á móti og fjórir tóku ekki afstöðu. Þjóðaratkvæðagreiðslan var meira en einfalt framhald af þinglegu ferli. Kjósendur voru beðnir um að skera úr um meiri háttar stefnumál ríkisstjórnarinnar. Svar þeirra var skýrt: Nei. Íslenska þjóðin fékk boð um sæti við samningaborðið. Hún horfði á stólinn. Og ákvað að henni liði bara ágætlega standandi. En þeir sem buðu henni stólinn láta sem svarið skipti ekki máli. Höfundur er fjölmiðlafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar