Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson skrifar 2. september 2026 12:03 Skilaboð nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu voru ýmisleg. Skýrt var þó að Jáið og Neið höfðu nær öll áhyggjur af efnahagsmálum og hagstjórninni en meirihluti taldi þau betur leyst án þess að súrefnið væri tekið úr stjórnkerfinu næstu árin. Hvers vegna er þá forgangsmál ríkisstjórnarinnar sem hlaut ósigur um helgina, að bendla niðurstöðuna við sigur EES-samningsins og að setja Bókun 35 enn og aftur á dagskrá? Ég er ekki einn um þá skoðun að ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur algerlega glutrað niður sínu helsta verkefni, verkefni sem þau voru umfram allt annað kosin út á, efnahagsmálin. 85% almennings er á sama máli samkvæmt nýlegri könnun Gallup og gefur ríkisstjórninni algera falleinkunn. Þarf engan að undra með verðbólgu aftur á uppleið ásamt stýrivöxtum. Enda var skýrt ákall í þjóðaratkvæðagreiðslunni, sama hvar fólk lenti í afstöðu sinni, að við þyrftum að ráðast að þessum þrálátu vandamálum vaxta og verðbólgu. Held við getum öll sammælst um það þótt okkur deildi á um hvernig það yrði best leyst. Samtímis eru forsenduákvæði kjarasamninga nú brostin og afar skammur tími til stefnu, fram í október, hvort þeim verði hreinlega sagt upp eða ekki. Verkalýðshreyfingin hefur eytt sumrinu í ákaft ákall á ríkisstjórnina, að sýna á spilin, að koma fram með aðgerðapakka sem geti afstýrt blóðugum kjarasamningaviðræðum á þessum erfiðu efnahagslegu tímum. Svarið hefur ekki borist. Eða jú, Kristrún Frostadóttir sagði í sumar að það sé ábyrgð aðila vinnumarkaðarins að koma sér saman um lausnir, það væri ekki hennar verkefni, hún væri jú upptekin við rörsýn sína á hallalaus fjárlög. Hallaleysi sem hún nær fram með verðbólguhvetjandi gjaldskrárhækkunum og svæsnum niðurskurði sem rýrir lífskjör og velferð almennings. Frábært plan. Svo skundaði Kristrún á hlustunarfundi út um allt land og þingliðar Samfylkingarinnar og Viðreisnar héngu á úthringiverum og bjuggu til samfélagsmiðlaefni í gríð og erg í baráttu sinni fyrir aðildarviðræðum við ESB. Forgangsmálin á hreinu. Sem víkur málinu að því sem framundan er. Á blaðamannafundi eftir kosningar eyddi Kristrún Frostadóttir miklu spin-doktors púðri í að mæra EES-samninginn, að niðurstaðan væri í raun gljáfægð aðdáun okkar allra á þeim samningi. Helsærð Þorgerður Katrín fór í það að snúa vörn í sókn og ætlar að fara fram með Bókun 35 í fjórða skiptið á Alþingi. Svokölluð Brussel-lógík, ef niðurstaðan er ekki “rétt” í fyrsta skiptið, þá kýs maður aftur og aftur og aftur. Íslendingar völdu fullveldi ofar afsali eða skerðingu þess. Íslendingar völdu að setja fókus og áherslu á efnahagsmálin á innlendri grundu. Íslendingar völdu meiri nálægð og áhrif á lýðræðislega ákvarðanatöku í stað þess að varpa henni fjær og út í heim. Ekkert af þessu er stuðningsyfirlýsing við EES-samninginn, sem með sínum einhliða hætti er afskaplega ólýðræðislegur. Staðreynd sem jafnvel Já-sinnar jánka, sbr. ekkert “sæti við borðið”. Ekkert af þessu er ákall eftir Bókun 35, sem 58% þjóðarinnar er andvíg, sem hvort sem fólk telur það stórvægilegt mál eður ei, er spurning um að formfesta frekara fullveldisafsal. “Galli” í EES-samningnum sem þarf að laga segja stuðningsmenn bókunarinnar, samningi sem hefur samt að þeirra mati virkað prýðilega í yfir 30 ár. Forgangsröðun skiptir máli. Við getum eytt næstu vikum og mánuðum í aðra umferð af óþarfa harðvítugum deilum þar sem ríkisstjórnin fer gegn skýrum þjóðarvilja til að þröngva í gegn vilja erlends skrifræðis. Eða við látum hreinlega á það reyna fyrir EFTA-dómstóli sem sker úr um málið. Við getum líka eytt næstu vikum og mánuðum í efnahagsmálin, í að lægja öldur á vinnumarkaði, í að grípa til verðbólgutemjandi leiguþaksaðgerða og tekið á verðbólguhvetjandi hegðun fjárfesta og auðmanna, sér í lagi á húsnæðismarkaði. Spurningin er því, hver er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Höfundur er formaður Sósíalistaflokks Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun