„Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 22:57 Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, vildi sem minnst segja um þjálfarafíaskóið sem hefur verið í kringum félagið undanfarnar vikur. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Stjarnan sótti þrjú mikilvæg stig með 2-0 sigri á Breiðablik í 21. umferð Bestu deildar karla. Félagið hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarnar vikur en Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði liðsins, sagði stemninguna í hópnum vera góða og að leikmenn láti verkin tala núna. „
Mér fannst við alveg töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Ég held að þeir hafi verið með meiri possession en mér fannst við alltaf skapa eitthvað, vorum hættulegir og sköpuðum góð færi,“ sagði Guðmudnur, fyrirliði Stjörnunnar, eftir leik. „Við vorum kannski á tímabili full aftarlega og full lítið að halda boltanum. En þá kannski kemur í ljós að liðið okkar líður þokkalega vel í svona stöðu núna, sem var ekkert endilega alltaf áður og það var þægileg tilfinning.“ „Við erum með hættulega menn fram á við, sem eru góðir einn á einn og fljótir. Það getur hentað stundum að fá liðin aðeins framar, þá fáum við svæði til að sækja í, þannig að þetta fer okkur bara þokkalega vel og mér finnst við svona bara gera þetta þokkalega í dag.“ Það hefur mikið verið rætt um félagið og stjórnina undanfarnar vikur en það virðist ekki hafa haft mikið áhrif á liðið. „Já, ég meina, við látum verkin tala. Það var einn sem mætti hérna með striga í viðtal og málaði upp einhverja mynd sem ekkert endilega allir könnuðust við. Ég vil bara hafa sem fæst orð um það en það er frábær stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala núna. Við erum að spila fínt, góðir sigrar og búnir að skora mörk og svo höldum við hreinu í dag.“ „Þannig að fyrir okkar leyti þá líður okkur helvíti vel og erum bara ánægðir með lífið,“ sagði Guðmundur að lokum.
Stjarnan Besta deild karla Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira