Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifa 27. ágúst 2026 10:00 Það eru blikur á lofti í alþjóðlegu hjálparstarfi. Fjölmörg ríki heims hafa dregið úr framlagi sínu til þróunarsamvinnu. Þetta skapar erfitt vinnuumhverfi og við sem störfum við mannúðarstörf þurfum að reiða okkur enn frekar á stuðning almennings. Átökin í Miðausturlöndum og lokun siglingaleiða um Hormússund hafa ekki einungis áhrif á verðhækkun á eldsneyti og nauðsynjavörum hér á landi, heldur einnig keðjuverkandi áhrif á allt mannúðarstarf í heiminum. Tafir á flutningi og hærri kostnaður vegna hjálpargagna hafa haft áhrif á lífsbjargandi verkefni Barnaheilla – Save the Children um allan heim. Lífi hundruð þúsunda barna er ógnað. Árið 2025 studdu alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children um 40 milljónir barna í 92 löndum. Barnaheill á Íslandi eru stolt af því að hafa lagt sitt að mörkum í því starfi, því ásamt ötulu innanlandsstarfi hafa alþjóðleg verkefni félagsins styrkst með hverju ári. Á þessum erfiðu tímum verðum við að taka slaginn fyrir börnin sem njóta góðs af verkefnum okkar – og það gerum við með hjálp þeirra sem styrkja starfsemi Barnaheilla. „Vissi ekki að nauðgun væri glæpur.“ Í nýju verkefni okkar í Tansaníu vinnum við að forvörnum og aðstoð við þolendur kynferðisofbeldis þar sem börn og ungmenni geta fengið samhæfða þjónustu félagsráðgjafa, lækna, lögreglu og lögfræðinga til að takast á við áföll. Stelpur sem við hittum þar, sögðust ekki hafa vitað að nauðgun væri glæpur. Á Madagaskar stuðlum við að auknu fæðuöryggi fyrir barnafjölskyldur til að sporna við afleiðingum hamfarahlýnunar og hungursneyðar sem vofir þar yfir. Það var nístandi að sjá þar börn sem ekki gátu hreyft sig vegna vannæringar. Í norðurhluta Íraks styðjum við mannúðarverkefni fyrir berskjölduð börn í flóttamannabúðum. Þar er starfsemi í uppnámi vegna ríkja sem hafa skyndilega hætt stuðningi sínum inni í búðunum. Og í Síerra Leóne, þar sem við höfum starfað í fimm ár, er nú að rísa nýr grunnskóli í afskekkta þorpinu Macca fyrir tilstilli Barnaheilla. Sú ákvörðun var tekin í vettvangsheimsókn þegar okkur varð ljóst að enginn skóli var á staðnum og því gátu börnin þar ekki nýtt sér þann stuðning sem Barnaheill veita í héraðinu. Verið er að leggja lokahönd á skólann, sem skapar þeim loksins tækifæri til menntunar og betri framtíð. Við hjá Barnaheillum vinnum náið með heimamönnum á hverjum stað og sníðum verkefnin okkar að þeirra þörfum. Hvert einasta verkefni geymir sögur af börnum og ungmennum sem starfsfólk Barnaheilla hefur kynnst á vettvangi. Við vitum að stuðningur okkar er mikilvægur fyrir nærsamfélagið og við vitum nákvæmlega hvernig því fé sem við öflum er varið. Stöndum með alþjóðlegu hjálparstarfi – og tökum slaginn fyrir börnin. Höfundur er Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, formaður Barnaheilla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tótla I. Sæmundsdóttir Réttindi barna Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar