Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar 27. ágúst 2026 09:00 Heimurinn og alþjóðamálin eru á svo mikilli hreyfingu – að ég kann engin fordæmi fyrir því. Einir nánustu bandamenn sögunnar innan NATO, Bandaríkin og Kanada, eiga nú í hörðum deilum og viðskiptastríði, að frumkvæði Bandaríkjaforseta, eftir að upp úr slitnaði í viðræðum þeirra á milli. Bandaríkin hafa sett fram kröfur sem myndu takmarka fullveldi Kanada, gerðu tilkall til meðferðar auðlinda þeirra svo sem sjaldgæfra og mikilvægra málma og vildu að Kanada hættu að ýta undir annað opinbert tungumál sitt af tveimur, frönsku. Kanada og ESB Viðbrögð Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, voru að standa í lappirnar. Hann boðar tolla til að svara tollum Bandaríkjanna og ítarlegar viðræður um aukin viðskipti og aukin samruna (integration) við Evrópusambandið næstu vikur. Noregur og ESB Ekkert land í heiminum fer varhluta af gríðlegum breytingum í alþjóðamálum og aukinni óvissu. Umræðan er á fleygiferð. Svíar og Finnar gengu í NATO og umræðan er komin á skrið í Noregi um að setja aðild að ESB aftur á dagskrá. Framtíð EES-samningsins Forystumenn í norskum stjórnmálum og atvinnulífi hafa að undanförnu greint frá þeirri skoðun sinni að framtíð EES-samningsins sé óviss, óháð ESB-umræðu og hugsanlegri inngöngu Íslands. Engu að síður byggja Nei-sinnar hér heima nær allan málflutning sinn á því að EES-samningurinn sé grunnur að framtíðarsamstarfi Íslands og ESB. Óvissa um EES og óvissa í alþjóðamálum eru rök fyrir að hefja aftur aðildarviðræður við ESB nú. Sterk samningsstaða Íslands nú Samningsstaða Íslands hafi sjaldan verið sterkari. Við þurfum ekki að ganga að hvaða samningi sem er. Bretar – sem voru okkur erfiðir í síðustu samningalotu - standa nú utan ESB eftir Brexit. Það hefur verið þeim dýrkeypt en styrkir okkar stöðu. Við erum velkomin í ESB, líkt og Norðmenn, en það styrkir okkar stöðu mjög að vera á undan Norðmönnum að hefja viðræður. Frekari öfugþróun í alþjóðamálum – og áhrif á Ísland Í kosningunum á laugardag er skynsamlegt að taka inn í myndina hvað gæti breyst og hvað gæti gerst á næstu árum og raunar áratugum. Í fyrsta lagi gætu Norðmenn gengið í ESB. Þar með væri EES-samningurinn úr sögunni. Í öðru lagi gætu Bretar gengið í ESB. Hvort tveggja myndi veikja samningsstöðu okkar verulega. Í þriðja lagi gæti sú alvarlega þróun sem við höfum séð í alþjóðamálum haldið áfram. Aðildarviðræður við ESB og aðild er öryggistrygging í óvissum heimi. Það er of seint að tryggja sig þegar eitthvað hefur þegar gerst. Raunsætt mat og öryggistryggingar Við þurfum að horfast í augu við stöðu mála. Við þurfum að vera yfirveguð, raunsæ en greina um leið það sem gæti gerst og hvernig við tryggjum öryggi okkar og stöðu gagnvart því. Við stöndum sterkt en það þarf ekki margt að gerast til að sú staða veikist. Eigi veldur sá sem varar. Í mínum huga eru alþjóðamálin og altumlykjandi óvissa skýr rök til að segja já, og halda dyrunum til nánara bandalags við Evrópu opnum. Oft var þörf, en nú er nauðsyn. Höfundur er þingmaður Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar