Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar 26. ágúst 2026 11:02 Á laugardag verður ein mikilvægasta atkvæðagreiðsla sem Íslendingar hafa tekið þátt í. Úrslitin gætu orðið tvísýn. Ef niðurstaðan verður JÁhefur þjóðin valið að halda tækifærum sínum opnum. Tækifæri sem fela meðal annars í sér: Alvöru gjaldmiðil með lægri vöxtum og áhættuálagi Efnahagslegan stöðugleika og aukinn fyrirsjáanleika Lægra vöruverð, aukna samkeppni og bætt lífskjör Að eflaöryggi gegn náttúruhamförum og ytri ógnunum Að tryggja sjálfstæði landsins og fullveldi Að fullt tillit verði tekið til sérstöðu landsins Aukin áhrif á gerð regluverks sem við innleiðum Evrópusambandið er samband fullvalda lýðræðisríkja. Talið er að samningsstaða Íslands hafi aldrei verið betri m.a. vegna aukins áhuga á norðurslóðum, að Noregur og Bretland eru fyrir utan sambandið og að Ísland yrði hvatningin fyrir Noreg að ganga inn í Evrópusambandið. Aðildarsamningur gæti orðið mjög hagfelldur fyrir Ísland.Þegar samningur lægi fyrir, yrði hann borinn undir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu. Lægri vextir og aukinn stöðugleiki með evru Nú eru vextir hér á landi himinháir sem er ekki bjóðandi almenningi né fyrirtækjum í landinu. Slíkir okurvextir valda efnahagslegri stöðnun og verða m.a. til þess að ungt fólk flytur síður heim úr námi og stór hluti sérverslunar flyst smám saman úr landi.Ókostir krónunnar og hvernig hún mismunar almenningi og fyrirtækjum kemur skýrt fram í þeirri staðreynd að sum þeirra nýta evruí uppgjörum og fjármögnun á meðan öðrum er það bannað. Líta má á verðtryggða krónu sem sérstakan gjaldmiðil. Hér á landi eru leigufélög og einstaklingar sem hafa hag af því að gera samninga í verðtryggðri krónu. Þetta fyrirkomulag gerir það að verkum að mánaðarlega hækkar húsaleigan sjálfvirkt. Hækkunin getur verið vegna þátta sem eru alls ótengdir fasteignaverði, t.d. hækkun flugfarmiða. Þannig verður verðtryggð króna nokkurskonar sjálfvirk peningavél hjá leigusölum. Stöðugur gjaldmiðill myndi koma í veg fyrir slíkt. Það væri mikil breyting til batnaðar ef Íslendingum auðnaðist að taka upp næststærsta gjalmiðil heims í stað krónu sem er einn sá minnsti og sérstaklega kostnaðarsamur. Fyrrverandi seðlabankastjóri hefur sagt að æ erfiðara sé að halda úti sjálfstæðri peningastefnu fyrir svo smáan gjaldmiðil. Innleiðing evru í stað krónu með stuðningi evrópska seðlabankans ætti ekki að taka nema nokkur ár. Vaxtalækkunin gæti hafist með trúverðugri leið að evru, jafnvel fljótlega eftir aðild og áhættuálag myndi lækka þegar peningastefnan lægi fyrir. Framtíðarsýn og möguleikar Þegar aðildarsamningur liggur fyrir geta Íslendingar tekið afstöðu sem byggir á staðreyndum. Slíkur samningur lýsir tækifærum sem aðildin myndi færaokkur. Það má teljast einkennilegt að vilja ekki sjá möguleika landsins í aðildasamningi. Það vekur athygli að einstaklingar sem hafa verið á móti ýmsum öðrum framfaraskrefum svo sem aðild að NATO, EFTA og EES séu jafnframt á móti því að Íslendingar kanni samningstöðu sína gagnvart Evrópusambandinu. Vantar ekki alla framtíðarsýn í slík viðhorf? Viðhorf vinaþjóða Vinaþjóðir okkar meta það greinilega mikils að vera hluti af sambandi þjóða með sameiginleg gildi og sambærilega hagsmuni. Um þrír af hverjum fjórum íbúum innan ESB telja aðildina hafa fært landi sínu raunverulegan ávinning samkvæmt nýlegri könnun. Í Svíþjóð hefur stuðningur við ESB-aðild farið vaxandi síðustu ár og mælist á bilinu 75-85% samkvæmt Eurobarometer og sænsku tölfræðistofnuninni (SCB). Það er talsvert hærra en þegar Svíar kusu um aðild árið 1994.Danir hafa verið í ESB frá 1973 og hafa jafnan mælst með einn mesta stuðning allra aðildarþjóða, allt að 85% Dana eru ánægð með ESB. Í Finnlandi hefur stuðningur við ESB-aðild aukist og er nú 75-80%. Tækifærin Ísland hefur innleitt um þrjá fjórðu af meginreglum ESB í gegnum EES. Fyrir utan þessar meginreglur eru ýmsar tímabundnar reglur sem teljast ekki með meginreglum. Því má segja að við séum nú að stórum hluta innan meginreglna sambandsins án þess að hafa þar áhrif. Með aðild að ESB hefði Ísland rödd og áhrif meðal annars með því að ráðherrarokkar sætu í ráðherraráði sambandsins og í leiðtogaráðinu. Auk þess hefði Ísland einn framkvæmdastjóra, dómara við Evrópudómstólinn og sex þingmenn á Evrópuþinginu sem þýðir að íslenskur kjósandi hefði þar 13 sinnum meira vægi en sá þýski. Smáríki hafa því hlutfallslega mun meira vægi en þau stóru. JÁá laugardaginn opnar á möguleika til að sjá hvaða tækifæri bjóðastframtíðarkynslóðum landsins. JÁ er svarið ef þú vilt hagfelldan aðildarsamning sem færir okkur bætt lífskjör, stöðugleika og aukið öryggi. Höfundur er formaður Viðreisnar á Seltjarnarnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar