Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar 25. ágúst 2026 20:31 Það er áhugavert að fylgjast með málflutningi þeirra sem segjast ætla að segja JÁ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessari JÁ-fylkingu má skipta í þrjá hópa miðað við málflutning fylkingarmanna í fjölmiðlum. Fyrsti og greinilega stærsti hópurinn í fylkingunni vill að Ísland gangi í Evrópusambandið. Þessi hópur er þess fullviss að aðild verði Íslandi til góðs. Strangt til tekið er þessi hópur ekki að segja „Já til að sjá“, enda veit hann vel að þetta eru alvöru aðildarviðræður, ekki „kíkja í pakkann“ viðræður eða könnunarviðræður. Þessi hópur veit líka að aðildarviðræðurnar munu fela í sér frekari aðlögun að reglum sambandsins meðan á viðræðum stendur, eins og gilt hefur um aðrar aðildarviðræður að þessu ríkjasambandi, enda er til þess ætlast að full aðild að sambandinu geti orðið um leið og aðildarþjóðirnar hafa samþykkt samninginn. Annar hópur í fylkingunni er jákvæður gagnvart samningaviðræðum þótt þeir sem tilheyri honum séu ýmist hlutlausir eða heldur neikvæðir gagnvart aðild Íslands að Evrópusambandinu. Einstaklingar í þessum hópi vilja segja „JÁ til að sjá“ eins og um einfaldar könnunarviðræður sé að ræða. Siðan ætla þeir að taka stöðuna á ný og ýmist hneigjast til frekari neikvæðni og hafna, eða jákvæðni og samþykkja, aðild að Evrópusambandinu þegar þeir hafa „kíkt í pakkann“. Þá er það þriðji JÁ-hópurinn sem er væntanlega minnstur. Þessi hópur er ótvírætt á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu, en telur að til þess að „ljúka þessu leiðindamáli“ sé rétt að segja JÁ nú og fá vondan samning upp á borðið til þess að svo sé hægt að hafna honum og þar með aðild að sambandinu í eitt skipti fyrir öll. Þessi hópur byggir meðal annars á fyrirliggjandi upplýsingum um að meirihluti Íslendinga sé á móti aðild að Evrópusambandinu, en að á meðal þeirri neikvæðu séu þó einstaklingar sem eru jákvæðir gagnvart aðildaraviðræðum, samanber hóp tvö hér að framan. Þessi þriðji hópur telur sem sagt að meirihluti neikvæðra muni halda þegar kosið verður um aðildarsamning. Afstaða þessara þriggja hópa í Já-fylkingunni vekja ýmsar spurningar. Fyrsti hópurinn horfir ýmist framhjá eða gerir lítið úr annmörkum og gefur sér margt í ætluðum ávinningi að Evrópusambandinu umfram ávinninginn af EES samstarfinu sem Íslendingar eiga þegar aðild að. Vísað er til hernaðarlegra hagsmuna Íslands þó Evrópa sé ekki hernaðarbandalag og Evrópuher ekki til. Vísað er til nýs gjaldmiðils, betri lánakjara og stöðugra verðlags, þó hvorki gjaldmiðill, lánakjör eða verðlag séu samningsatriði í aðildarviðræðum. Gengið er að auki út frá fullu forræði Íslendinga yfir auðlindum í sjó og á landi, þó á slíka hluti hafi ekki verið fallist í fyrri viðræðum við aðildarþjóðir sambandsins. Það athyglisverða er að þessi hópur veit að líkindum betur, en er samt harður á því að aðild að Evrópusambandinu sé og muni verða góð fyrir Ísland. Vandi annars hópsins í Já-fylkingunni er sá helstur að skilningur á sáttmálum, skipulagi og reglum Evrópusambandsins og eðli viðræða um aðild að sambandinu virðist ekki nægilega skýr í hópnum. Segja mætti að óskhyggja ráði töluverðu um afstöðu þessa hóps og að innistæðan sé óljós. Þá er það þriðji hópurinn í Já-fylkingunni. Hann er tilbúinn í veðmál – veðmál um samþykki sem síðan muni leiða til höfnunar. Þessu veðmáli eins og öðrum fylgir áhætta. Hún er sú að samþykki þjóðarinnar við aðildarviðræðum verði skref sem færi Íslendinga nær samþykki við inngöngu í Evrópusambandið. Sagt verði: „Þið hafið þegar samþykkt viðræðurnar og öllu sem þeim fylgir, nú er bara eftir að samþykkja samninginn. Það fari enginn í aðildarviðræður nema með vilja til aðildar.“ Fyrra skrefið gæti því dugað til að koma Já-inu yfir línuna og Íslandi inn í Evrópusambandið. Höfundur er prófessor í félagsfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun