Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 17:30 Nei fyrir frið, mannréttindi og alþjóðalög Í ESB umræðunni eru tvö svið sem ættu að skoðast aðskilin þó bæði séu mikilvæg, þ.e. innanlandsáhrif og í ytra samhengi. Varðandi innlend efnhagsmál hefur mikið verið rætt um vexti og í því sambandi að létta byrði unga fólksins sem er góð og falleg hugsun. Minna er rætt um þá staðreynd að á meginlandinu, býr töluvert stærri hópur heima allt að 35 ára aldri, vegna lágra launa og/eða atvinnuleysis. Einnig hafa ókostir sjálfstæðs gjaldmiðils verið í deiglunni sem er vissulega vandi. Samt kannski ekki úr vegi að minnast þess hversu hratt Ísland vann sig upp úr hruninu, miðað við t.d Grikkland sem átti vel yfir áratug, í tómu basil þrátt fyrir að hafa evruna. Lægra vöruverð er auðvitað eftirsóknarvert en það sem skiptir öllu máli þar er auðvitað kaupmátturinn og þar er Ísland, þrátt fyrir allt í top tíu hópi Evrópuríkja. Þá er skiljanlega stór hópur hérlendis sem er orðin þreyttur á hagstjórn sem virðist á köflum ráða við lítið og fólk horfir þess vegna til erlendra bjargvætta sem þó eru ekki að fara að leysa málin fyrir okkur, öðruvísi en að gefa forskrift. Þá vaknar ójákvæmilega sú spurning, af hverju þurfum við þrýsting erlendis frá ef við getum gert þetta sjálf ? Það fer ekk mikið fyrir almennum Evrópubúum sem mæla með inngöngu, heldur þvert á móti er gnótt af varnaðarorðum. Nýsköpun og frumkvöðlastarf, t.a.m. í hugverkaiðnaði er Íslandi mikilvægt og ekki líst aðilum á því sviði á ESB blikuna. ESB eru ekki félagasamtök, klúbbur eða velviljað afsláttarfélag, heldur beinhart viðskiptabandalag, með efnahagsmál og stjórnvald í forgrunni. Það er vissulega liðin tíð að almenningur geti tekið upp tólið og haft beint samband við þingmenn sina en á þessu sviði hefur Ísland haft sérstöðu og hefur að einhverju leyti enn. Stjórnsýslukeðjan er hér frekar stutt á sumum sviðum en til erlends stjórnvalds með skrifræðiðð í forgrunni, yrði hún bæði afar löng og torfærin. Þá sætir það furðu hversu lítið umræðan hefur snúist um þann gífurlega lýðræðishalla sem er innan ESB og að Ísland yrði undirorpið þeim halla. Þá er ekki bara horft til hverfandi atkvæðavægis mjög fámennrar þjóðar, 6 atkvæða meðal 720 þingmanna. Nær útilokað er að hafa áhrif með atkvæði sínu en það er ekki það versta. Í verki ræður Framkvæmdastjórnin því sem skiptir máli, ekki þingmenn Evrópuþingsns. Meirhlutavilji, þ.e. lýðræðið, ræður engu en hinsvegar er neitunarvald fyrir hendi og minnir það óþægilega á öryggisráð SÞ sem litlu eða engu fær breytt eða bætt í stöðu alþjóðamála eða friðarumleitana. Dæmi um það er að 25 lönd vildu efnahagsaðgerðir gegn Ísrael og þjóðarmorðinu á Gaza en þýskur og ítalskur vilji réðu för. Von der Leyden var aldrei kosinn heldur ráðin. Þýskir vopnaframleiðendur selja Israelum vopn og styðja þá á allan hátt í gengdarlausum mannréttindabrotum, stríðsglæpum, landþjófnaði, auðlindaþjófnaði barnamorðum, aftökum án dóms og laga, já, listinn er langur. Stuðningur þeirra við Ísraela hefur ekki farið framhjá neinum en með honum er einnig grafið undan alþjóðastofnunum sem eiga að berjast fyrir mannréttindum og gegn stríðsglæpum. Alþjóðastofnunum sem eiga að vera verndandi fyrir allar þjóðir, okkur líka. Ýmsar þjóðir hafa kvartað yfir þýskri slagsiðu, segja þetta snúast allt um þýska banka og hergagnaiðnað þarlendis. Og jú, vissulega hefur það tæplega farið framhjá neinum að friðarumleitanir eru ekki efstar í huga þjóðverja sem hafa sagst ekki vilja þær þó samningarviðræður vegna Úkraínu, væru í boði. Í Úkraínu hefur kosningum endurtekið verið frestað, stjórnarandstöðuflokkar eru bannaðir, sem og gagnrýni þeirra og vefsíðum umsvifalaust lokað. Þar er tjáningarfrelsi ekki fyrir hendi. Tugum milljarða er mokað til landsins og þeir kaupa vopn, framleidd í Þýskalandi. Stóra hervæðingarátakið kemur svo 2028 og ekki hægt að útiloka að Ísland yrði eitt af borgunarlöndunum, þessir 8-14 milljarðar á ári munu líklega ekki fara í þróunarstarf því opinbera þjónustu og flest annað á að skera stórlega niður. Annað dæmi um lýðræðishallann, er hvernig frumvarpi um vöktun á rafrænum samskiptum almennra borgara var þrýst í gegn eftir að hafa verið fellt í Evrópuþinginu vegna persónuverndarsjónarmiða. Á endanum tókst að nauðga því í gegn af Framkvæmdastjórnini á hentugu augnabliki í fámennu þingi. Nú fara sögur af því að Framkvæmdastjornin ætli að selja þessar upplýsingar en það er óstaðfest. Í þessu ljósi er sannarlega ekki úr vegi að spyrja sig; þyrfti mikla og flókna klæki til að ráðkast með CFSP, þ.e. utanrikis- og öryggisstefnu ESB og þar með okkar skyldur ef til kæmi? Ég segi nei takk, það samræmist ekki mínum gildum að hætta á samsekt í þjóðarmorði eða öðrum stríðsrekstri fyrir hagnað annarra. Höfundur er upplýsingafræðingur, stjórnsýslufræðingur, Evrópufræðingur og áhugamaður um frið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar