Harington tekur við af uppteknum Hoult Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. ágúst 2026 11:35 Harington mun leika Gilderoy Lockhart í stað Nicholasar Hoult. Krúnuleikastjarnan Kit Harington mun leika galdrakennarann Gilderoy Lockhart í annarri seríu af sjónvarpsþáttunum um Harry Potter á HBO. Hann kemur í stað Nicholas Hoult, sem er þekktastur fyrir leik sinn í About a Boy og Superman, sem þurfti að hætta vegna skipulagsárekstra.
Bransamiðillinn Deadline greindi frá tíðindunum í gær. Þar kemur fram að HBO hafi þurft að púsla tökum á annarri seríunni í kringum tvö önnur verkefni Hoult en á endanum hafi það ekki tekist og leikarinn því verið leystur undan samningi. Kvikmyndaverið hafi þá haft samband við Harington sem tók glaður við hlutverkinu. Harington hefur dálítla reynslu af hlutverkinu því hann talaði inn á Harry Potter: The Full-Cast Audio Editions, hljóðbókaútgáfu af öllum sjö bókunum, sem kom út á síðasta ári. Þá er þetta þriðja HBO-serían sem Harington leikur í en hann varð frægur fyrir að leika Jon Snow í Krúnuleikunum (2011-19) og leikur um þessar mundir í þáttunum Industry (2020-27). Gilderoy Lockhart er stór persóna í annarri bókinni í seríunni, Harry Potter og leyniklefanum, en í aðlögun bókarinnar að stóra skjánum var hann leikinn af Kenneth Branagh. Lockhart er hégómafullur og montinn galdrakennari sem er ráðinn af Dumbledore til að kenna varnir gegn myrku öflunum. Tökur á annarri seríu þáttaraðarinnar hefjast í haust en fyrsta serían kemur út næstu jól á streymisveitunni HBO Max og byggir á fyrstu bókinni, Harry Potter og viskusteininum. Þættirnir munu ná að kafa dýpra ofan í hverja bók en myndirnar gerðu en það er líka spurning hvort fyrstu bækurnar séu nógu efnismiklar til að standa undir mörgum klukkutímum. Fjöldi þekktra leikara leikur í seríunni, þar á meðal Nick Frost sem Hagrid, John Lithgow sem Dumbledore, Paapa Essiedu sem Snape og Janet McTeer sem McGonagall. Serían hefur einnig vakið reiði þeirra sem eru andsnúnir rihöfundinum J.K. Rowling vegna hatursfullra skoðana hennar í garð trans fólks.
Bíó og sjónvarp Bretland Tengdar fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Nú er ljóst hverjir munu leika vinina í hinu goðsagnakennda Harry Potter tríói í væntanlegri sjónvarpsþáttaröð HBO um galdrastrákinn og ævintýri hans. 27. maí 2025 15:45 Tilkynna leikara fyrir nýja Harry Potter þáttaröð HBO streymisveitan hefur opinberað nöfn nokkra leikara sem taka að sér hlutverk í nýrri þáttaseríu um galdrastrákinn Harry Potter. Enn á eftir að skipa í hlutverk aðalpersónunnar Harry Potter. 14. apríl 2025 18:45 Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Nú er ljóst hverjir munu leika vinina í hinu goðsagnakennda Harry Potter tríói í væntanlegri sjónvarpsþáttaröð HBO um galdrastrákinn og ævintýri hans. 27. maí 2025 15:45
Tilkynna leikara fyrir nýja Harry Potter þáttaröð HBO streymisveitan hefur opinberað nöfn nokkra leikara sem taka að sér hlutverk í nýrri þáttaseríu um galdrastrákinn Harry Potter. Enn á eftir að skipa í hlutverk aðalpersónunnar Harry Potter. 14. apríl 2025 18:45