Innlent

Leit enn í fullum gangi

Eiður Þór Árnason skrifar
Mikill fjöldi tekur þátt í leitinni.
Mikill fjöldi tekur þátt í leitinni. Landsbjörg

Leit stendur enn yfir að manni sem talið er að fallið hafi út í Jöklu í Stuðlagili. Hátt í hundrað björgunarsveitarmenn taka þátt í aðgerðinni en tilkynning barst um atvikið um klukkan eitt í dag.

Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Fyrstu viðbrögð hafi verið að senda eins mikinn mannskap á svæðið og kostur var. Gengu björgunarsveitarmenn svo meðfram ánni frá brúnni við Klaustursel og flugu myndavéladrónum yfir svæðið.

Sérstaklega hafi verið leitað vel frá Stuðlagili þar sem síðast sást til mannsins. Þyrla Landhelgisgæslunnar hafi komið á svæðið upp úr hálf fjögur með straumvatnsbjörgunarmenn frá Reykjavík og flogið meðfram ánni.

Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður komu nærstaddir konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.

Tilkynnt var um mann sem hafði fallið í Jöklu í Stuðlagili.Landsbjörg

Fréttin er í vinnslu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×