Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar 24. ágúst 2026 12:20 Umræðan um aðild Íslands að Evrópusambandinu snýst oft um það hvort við viljum vera „reglusetar“ eða „regluþegar“. Mér finnst sú framsetning of einföld. Raunverulega spurningin er hvort Ísland eigi að varðveita þann sveigjanleika sem hefur gert okkar litlu þjóð að einu samkeppnishæfasta frumkvöðlasamfélagi Evrópu. Ég er eindreginn stuðningsmaður frjálsra viðskipta, alþjóðlegs rannsóknasamstarfs og náinna tengsla við Evrópu. En samstarf annars vegar og yfirþjóðleg stjórnsýsla og framsal hluta fullveldisins hins vegar, eru ekki sami hluturinn. Smæðin er samkeppnisforskot Helsta samkeppnisforskot Íslands er hversu nálægt okkur ákvarðanir eru teknar, það er kostur sem smæðin gerir mögulegan. Sagan sýnir að framfarir urðu í hvert sinn sem ákvörðunarvaldið færðist nær okkur: með afnámi einokunar, tilkomu verslunarfrelsis, fullveldinu árið 1918 og stofnun lýðveldisins árið 1944. Lítið samfélag getur gripið tækifæri sem felast í nýjum atvinnugreinum hraðar, lagað regluverk að eigin aðstæðum og skapað umhverfi þar sem frumkvæði fær að blómstra. Það er ekki tilviljun að mörg öflugustu nýsköpunarfyrirtæki landsins hafa orðið til í samfélagi þar sem stutt er milli frumkvöðla, stjórnvalda, háskóla og fjárfesta. Því stærri og fjölmennari sem samfélög verða, þeim mun meiri verður freistingin til að flækja regluverkið og stækka embættiskerfið. Afleiðingin er hægari ákvarðanataka, meira skrifræði og minna svigrúm fyrir nýsköpun og frumkvæði. Evrópusambandið hefur sjálft viðurkennt að þessi þróun sé orðin ein helsta áskorun álfunnar. Nýsköpun er framtíð útflutnings Vestfirðir eru skýrt dæmi um hvernig nýsköpun getur snúið við þróun heils landshluta. Fyrir fjórum áratugum einkenndi fólksfækkun og atvinnusamdráttur svæðið. Í dag hefur myndin snúist við með uppgangi sem byggir m.a. á öflugri líftækni, sjálfbæru fiskeldi og ferðaþjónustu, atvinnugreinum sem styðja hver aðra og skapa fjölbreyttari og sterkari efnahag. Kerecis er eitt dæmi um þessa þróun. Þar tókst að breyta vannýttum aukaafurðum úr sjávarútvegi í alþjóðlega heilbrigðistækni sem flytur út þekkingu fremur en hráefni. Þannig verður verðmætasköpun til: náttúruauðlindir, vísindi og frumkvöðlastarf sameinast í vörur með margfalt hærra virði. Ísland þarf fleiri slík fyrirtæki, ekki fleiri hindranir. Evrópa sér vandann Minnkandi hagvöxtur í Evrópusambandinu og sú staðreynd að Bandaríkin og Kína hafa vaxið mun hraðar undanfarin ár hafa vakið verulegar áhyggjur innan sambandsins. Ef þessi þróun heldur áfram er hætta á að Evrópa verðu undir í samkeppninni og lífskjör versni í álfunni. Draghi-skýrslan, sem Evrópusambandið sjálft lét vinna, kemst að þeirri niðurstöðu að Evrópa hafi tapað samkeppnishæfni vegna hægrar ákvarðanatöku, sundurlausra fjármagnsmarkaða og sívaxandi skrifræðis. Sem frumkvöðull í heilbrigðistækni sé ég þetta á hverjum degi. Fjölmörg evrópsk fyrirtæki velja að sækja fyrst inn á Bandaríkjamarkað vegna þess að leyfisveitingar og innleiðing í Evrópu eru bæði dýrari og tímafrekari. Sá tími og fjármagn sem fer í lögfræðinga, skýrslugjöf og stjórnsýslu fer ekki í rannsóknir, verkfræð eða þróun nýrra lausna fyrir sjúklinga. Þetta er vandamál sem Evrópusambandið viðurkennir sjálft. Rannsóknarsamstarf krefst ekki aðildar Mörg íslensk fyrirtæki hafa notið styrkja úr styrkjakerfum Evrópusambandsins sem sýnir að Ísland getur átt í öflugu rannsóknarsamstarfi án aðildar að Evrópusambandinu. Ísland tekur t.d. þátt í Horizon í gegnum EES-samninginn án þess að vera aðili að Evrópusambandinu. Við njótum þannig öflugs rannsóknasamstarfs og vísindatengsla án þess að afsala okkur ákvörðunarvaldi á mörgum öðrum sviðum. En samstarf og yfirþjóðleg stjórnsýsla eru ekki sami hluturinn. Hvað myndi Jón Sigurðsson gera? Jón Sigurðsson barðist ekki fyrir því að Íslendingar fengju fleiri fulltrúa á danska þinginu. Hann barðist fyrir því að ákvarðanir um Ísland yrðu teknar á Íslandi. Danska konungsveldið er auðvitað ekki það sama og Evrópusambandið. En grundvallaratriðið er hið sama: hagsmunir stórs stjórnmálasambands munu ekki alltaf falla saman við hagsmuni lítillar Norður-Atlantshafsþjóðar. Því fjær sem ákvörðunarvaldið er frá okkur, þeim mun meiri líkur eru á að þarfir jaðarsvæða eins og Íslands víki fyrir þörfum miðjunnar. Þetta var kjarninn í málflutningi Jóns Sigurðssonar. Þegar ákvörðunarvaldið færist of langt frá fólkinu eykst hættan á ofreglu, skrifræði og minni nýsköpun. Öfgakenndasta dæmið voru Sovétríkin, þar sem miðstýrð stjórnsýsla og sívaxandi embættiskerfi drógu úr frumkvæði og samkeppnishæfni og urðu meðal þeirra þátta sem leiddu að lokum til hruns ríkisins. Evrópusambandið er auðvitað ekki Sovétríkin, óralangt frá því, en það er áminning um að fjarlæg ákvarðanataka getur smám saman grafið undan nýsköpun og hagvexti. Við eigum að vera opin þjóð. Við eigum að eiga frjáls viðskipti, taka þátt í evrópsku rannsóknasamstarfi og semja viðskipti við heiminn allan. En við eigum einnig að varðveita rétt okkar til að taka ákvarðanir um Ísland á Íslandi. Þetta er ekki andstaða við Evrópu. Þetta er trú á okkur sjálf og þá leið sem hefur fært okkur Íslendingum aukið frelsi, nýsköpun og velsæld. Þetta er trú á okkur og trú á Íslandi. Höfundur er talsmaður og stofnandi Framfarafélags Vestfjarða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun