Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. ágúst 2026 12:01 Siggi Gunnars er hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 og kominn alfarið yfir í sjónvarpið. RÚV Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunnars, er hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 eftir að hafa fært sig yfir í dagskrárgerð í sjónvarpi fyrr á árinu. Dagskrárstjóri Rásar 2 og tónlistarráð Rásar 2, sem er skipað starfsfólki stöðvarinnar, hefur sinnt verkefnum tónlistarstjóra síðan þá og mun gera það áfram.
Siggi Gunnars var ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2 árið 2022 eftir að hafa starfað áður sem dagskrár- og tónlistarstjóri útvarpsstöðvarinnar K100. Siggi er menntaður fjölmiðlafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og er með meistaragráðu í faginu með áherslu á útvarp frá háskólanum í Sunderland á Englandi. Sjá einnig: Siggi Gunnars nýr tónlistarstjóri Rásar 2 Siggi hefur stýrt hinum ýmsu þáttum á Rás 2 síðustu fjögur ár, meðal annars Popplandi, Upp, upp mín sál og Uppskrift að jólum. Hann færði sig yfir í sjónvarpið í apríl á þessu ári þegar hann byrjaði með menningarþættina Miðstöðina. Siggi staðfesti í samtali við blaðamann að hann hefði hætt sem tónlistarstjóri Rásar 2 fyrr á árinu og væri kominn alfarið í dagskrárgerð. Hann hefði langað til að sinna meiri dagskrárgerð og minni stjórnun. Matthías Már Magnússon, dagskrárstjóri Rásar 2, segist við blaðamann hafa séð um verkefni tónlistarstjóra síðan Siggi færði sig yfir í sjónvarpið í samvinnu við tónlistarráð stöðvarinnar. Matthías Már gengur í hin ýmsu verk á Rás 2.Vísir/Anton Brink „Ég tók að mér tónlistarstjórnina aftur eftir að Siggi fór, ég var tónlistarstjóri Rásar 2 áður en ég varð dagskrárstjóri, og í rauninni mun tónlistarráð Rásar 2 stýra þessu. Sama tónlistarráð og hefur verið,“ segir Mattías en ráðið er skipað starfsfólki stöðvarinnar. „Ég svara fyrir tónlistarráðið og sinni þessum helstu tónlistarstjóraverkefnum sem Siggi var með,“ segir hann.
Ríkisútvarpið Tónlist Menning Vistaskipti Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira