Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar 24. ágúst 2026 11:00 Skýrslu sem gefin var út í nafni RSE, undir heitinu “Utanríkisverslun Íslands: Raunveruleg mynd” hefur verið haldið á lofti meðal Nei sinna til að teikna upp þá mynd að vægi ESB sé ofmetið og sé sambærilegt við vægi Bandaríkjanna. Innflutningur fær litla umfjöllun. Þó svo að grunngögn RSE-skýrslunnar standist að mestu skoðun, styðja gögnin ekki þá mynd sem þar er teiknuð. Þvert á móti sýna gögnin: ESB eitt tekur við um helmingi alls útflutnings Íslands. Bandaríkin taka við um 22%. Helmingur alls innflutnings kemur frá ESB. Um 10% innflutnings kemur frá Bandaríkjunum, sem er næst stærst. ESB er stærsti markaðurinn bæði fyrir íslenskar vörur og þjónustu. Um 63% alls útflutnings fer til Evrópu - ESB, Bretlands og Noregs, og um 65% innflutnings koma þaðan. Þessir Evrópumarkaðir og Bandaríkin taka saman við um 85% útflutnings Íslands, og eru uppspretta 75% innflutnings. Þrátt fyrir að 12 ár séu liðin frá gildistöku fríverslunarsamnings við Kína, er útflutningur til Kína um 1,6% af heildinni. Indland vegur minna en Færeyjar. Gögnin sýna því með óyggjandi hætti að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands. Í næstkomandi þjóðaratkvæðagreiðslu er ekki verið að greiða atkvæði um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Spurningin er hvort við viljum taka samtal og skipulega vinnu um helstu hagmunamál þjóðarinnar við stærsta og mikilvægasta viðskiptasvæði okkar, sem í gegnum aukaaðild okkar að Evrópusambandinu setur megnið af reglum okkar atvinnulífs. Ég segi já til að sjá. Höfundur er framkvæmdastjóri og áhugamaður um nýsköpun, viðskiptafrelsi og framtíð Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skýrslu sem gefin var út í nafni RSE, undir heitinu “Utanríkisverslun Íslands: Raunveruleg mynd” hefur verið haldið á lofti meðal Nei sinna til að teikna upp þá mynd að vægi ESB sé ofmetið og sé sambærilegt við vægi Bandaríkjanna. Innflutningur fær litla umfjöllun. Þó svo að grunngögn RSE-skýrslunnar standist að mestu skoðun, styðja gögnin ekki þá mynd sem þar er teiknuð. Þvert á móti sýna gögnin: ESB eitt tekur við um helmingi alls útflutnings Íslands. Bandaríkin taka við um 22%. Helmingur alls innflutnings kemur frá ESB. Um 10% innflutnings kemur frá Bandaríkjunum, sem er næst stærst. ESB er stærsti markaðurinn bæði fyrir íslenskar vörur og þjónustu. Um 63% alls útflutnings fer til Evrópu - ESB, Bretlands og Noregs, og um 65% innflutnings koma þaðan. Þessir Evrópumarkaðir og Bandaríkin taka saman við um 85% útflutnings Íslands, og eru uppspretta 75% innflutnings. Þrátt fyrir að 12 ár séu liðin frá gildistöku fríverslunarsamnings við Kína, er útflutningur til Kína um 1,6% af heildinni. Indland vegur minna en Færeyjar. Gögnin sýna því með óyggjandi hætti að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands. Í næstkomandi þjóðaratkvæðagreiðslu er ekki verið að greiða atkvæði um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Spurningin er hvort við viljum taka samtal og skipulega vinnu um helstu hagmunamál þjóðarinnar við stærsta og mikilvægasta viðskiptasvæði okkar, sem í gegnum aukaaðild okkar að Evrópusambandinu setur megnið af reglum okkar atvinnulífs. Ég segi já til að sjá. Höfundur er framkvæmdastjóri og áhugamaður um nýsköpun, viðskiptafrelsi og framtíð Íslands.
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar