Ráðherra byrjar með hlaðvarp Bjarki Sigurðsson skrifar 23. ágúst 2026 15:56 Jóhann Páll Jóhannsson er ekki bara ráðherra heldur líka hlaðvarpsstjórnandi. Vísir/Lýður Valberg Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er byrjaður með hlaðvarp. Hlaðvarpið heitir Sjónarhorn. Annar þingmaður flokksins er einnig með hlaðvarp og flokkurinn sjálfur rekur hlaðvarp þar sem iðulega er rætt við þingmenn flokksins.
Ráðherra greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum. „Ég er ungur karlmaður. Svo það hlaut að koma að því að ég byrjaði með hlaðvarp (staðan er eiginlega orðin þannig að maður hefur þungar áhyggjur af ungum karlmönnum ef þeir eru ekki með hlaðvarp). Allavega, hugsunin er þessi: Maður er fundandi allan daginn, alltaf að tala við fólk og læra eitthvað nýtt – og hví ekki að gera það endrum og eins fyrir opnum tjöldum í hlaðvarpi?“ skrifar Jóhann Páll. Hann ætli að prófa þetta fram að jólum og taka frá tvær til þrjár klukkustundir á mánuði í þetta verkefni. Hann muni fjalla um samfélagsmál og sérstaklega sín málefnasvið, þá umhverfis-, orku- og loftslagsmál enda umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Fyrsti gestur er Gréta María Garðarsdóttir, stjórnarkona í Já til að sjá og fyrrverandi forstjóri Prís. Hún hefur verið áberandi í umræðunni í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardaginn næstkomandi. Dagur B. Eggertsson, einnig þingmaður Samfylkingar, þó ekki ráðherra, heldur úti hlaðvarpinu Flekaskil ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og tilvonandi sendiherra í London. Þar eru alþjóðamálin oftast í brennidepli. Samfylkingin sjálf heldur svo úti hlaðvarpinu Kratinn. Þar er fjallað um hvað er að gerast í flokksstarfinu og rætt við kjörna fulltrúa þess. Þáttarstjórnendur eru allir starfsmenn þingflokksins.
Hlaðvörp Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Fjölmiðlar Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira