Veður

Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austan­lands

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Seinnipart dags er spáð tuttugu gráðum á Egilsstöðum. 
Seinnipart dags er spáð tuttugu gráðum á Egilsstöðum. 

Í dag má búast við suðvestlægri eða breytilegri átt, á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu. Skýjað verður með köflum og víða skúrir. Hiti verður á bilinu tíu til tuttugu stig, hlýjast á Austurlandi.

Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að í dag verði yfirleitt gola eða stinningsgola. Skúrir verði víða um land, einkum á Suður- og Vesturlandi. Í kvöld lægi og létti víða til. Hiti frá tíu stigum á norðvestantil upp að tuttugu stigum austanlands.

Í fyrramálið komi næsta lægð en hún muni fara norður yfir landið á morgun. Á morugn verði því suðaustan strekkingur en á vestanverðu landinu muni blása úr norðri. Úrkoma verði á öllu landinu, talsverð um tíma á Suðaustur- og Vesturlandi. Hiti verði á bilinu átta til fimmtán stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga: 

Á þriðjudag:

Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Rigning suðaustantil, en annars skýjað með köflum og dálitlar skúrir. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á miðvikudag:

Fremur hæg breytileg átt og skúrir, einkum vestantil. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á fimmtudag:

Hæg breytileg átt og dálítil rigning með köflum, en áfram milt veður.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×