Fótbolti

Leik­menn beggja liða fá bönn eftir úr­slita­leik HM

Andri Broddason skrifar
Slagsmál brutust út eftir að Spánn vann Argentínu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta.
Slagsmál brutust út eftir að Spánn vann Argentínu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Lars Baron/Getty Images

Leandro Paredes fær tíu leikja bann fyrir slagsmálin eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Leikmenn úr báðum liðum fengu leikbönn.

Eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta þar sem Spánn vann Argentínu 1-0 brutust út slagsmsál milli nokkurra leikmanna. Þar sást Paredes henda Gavi, leikmanni spænska landsliðsins, í jörðina ásamt því að grípa Eric Garcia halstaki. Fyrir þetta atvik hefur Paredes verið dæmdur í tíu leikja bann en hann leikur með Boca Juniors í heimalandinu.

Á sama tíma hefur Nahuel Molina verið dæmdur í sjö leikja bann fyrir að slá Rodri, fyrirliða Spánar, í átökunum sem brutust út eftir úrslitaleikinn. Aðstoðarþjálfari Argentínu, Roberto Ayla, var einnig dæmdur í þriggja leikja bann.

Argentíska knattspyrnusambandið fékk einnig refsingar fyrir ýmis brot á meðan á heimsmeistaramótinu stóð. Sambandið verður sektað um 321 þúsund dollara eða tæpar 40 milljónir króna. Ásamt því mun argentíska landsliðið þurfa að spila næstu tvo leiki bak við luktar dyr.

Leikmenn spænska landsliðsins voru ekki alveg lausir við refsingar en Gavi fékk einnig eins leiks bann fyrir að espa undir Argentínumennina sem leiddi til þess að átökin brutust út. Hann sagði þó eftir úrslitaleikinn að Paredes ætti ekki að fá bann heldur hefði hann einfaldlega átt að vera rekinn af velli í leiknum.


Tengdar fréttir

Argentína nú þegar undir rannsókn

Fifa mun líklegast setja af stað rannsókn vegna skammarlegrar hegðunar leikmanna argentíska landsliðsins eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fifa er nú þegar að rannsaka Argentínu eftir að liðið hélt á pólitískum borða eftir leik Argentínu og Englands.

Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið

Fifa hefur gefið út hvað er verið að rannsaka hjá argentíska landsliðinu í fótbolta. Bæði stuðningsmenn og leikmenn liðsins brutu reglur alþjóða knattspyrnusambandsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Sérstaklega er verið að rannsaka hegðun leikmanna eftir úrslitaleik mótsins.

„Sársaukinn er gríðarlegur“

Lionel Messi er virkilega sár eftir að hafa tapað úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Hann reynir þó að horfa á mótið með bjartsýnisaugum og hugsar um allar góðu stundir mótsins.

Argentíska landsliðið má búast við sekt

Argentína vann England í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Argentíska liðið má þó búast við sekt þar sem leikmenn liðsins veifuðu fána með pólitískum skilaboðum eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×