Golf

Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma?

Andri Broddason skrifar
Gengi kylfinganna Rory McIlroy og Scottie Sheffler virðist hafa víxlast.
Gengi kylfinganna Rory McIlroy og Scottie Sheffler virðist hafa víxlast. Sean M. Haffey/Getty Images

Scottie Scheffler og Rory McIlroy virðast ekki geta fagnað góðu gengi á sama tíma en eftir fyrsta dag BMW Championship-mótsins er McIlroy ásamt öðrum í efsta sæti á meðan Sheffler er í fjórða síðasta sæti.

Árið hefur verið algjör rússíbanareið fyrir Rory McIlroy þar sem á síðasta móti PGA-mótaraðarinnar, St Jude Championship, endaði hann í 66. sæti af 70. Hann náði þó að rífa sig upp úr þeirri lægð og spilaði vel á fyrsta degi BMW-Championship og situr í efsta sæti sex höggum undir pari jafn fjórum öðrum kylfingum.

Ekki er hægt að segja sömu sögu af Scottie Scheffler en á síðasta PGA-móti vann hann með átta höggum. Hann náði ekki að halda áfram góðu gengi frá síðasta móti en hann er fjórði neðsti kylfingurinn á BMW Championship-mótinu á tveimur höggum yfir pari.

Stutta spilið hjá Scottie Scheffler var óaðfinnanlegt á síðasta móti en púttin voru ekki að detta niður hjá honum í gær. McIlroy náði að vinna mikið með þjálfaranum sínum til að laga sveifluna fyrir helgina.

Aðeins 50 kylfingar taka þátt í mótinu og þrátt fyrir að Scheffler sé í fjórða síðasta sæti þá er hann aðeins átta höggum frá fyrsta sætinu. Miðað við frammistöðu Scheffler síðustu ár er ekki enn hægt að útiloka hann frá toppsætum mótsins. Þrír hringir eru eftir af mótinu og getur enn allt gerst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×