Viðskipti innlent

Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir

Árni Sæberg skrifar
Icelandair hefur keypt tæpan helming í dótturfélagi Play.
Icelandair hefur keypt tæpan helming í dótturfélagi Play. Vísir/Vilhelm

Icelandair Group hf. hefur gengið frá kaupum á 49 prósenta eignarhlut í Fly Play Europe Holdco ehf., af FPE hs., sjóði í rekstri Ísafold Capital Partners hf., en dótturfélag þess, Fly Play Europe Limited á Möltu er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Kaupin eru í samræmi við viljayfirlýsingu sem Icelandair tilkynnti um fyrr á árinu.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að með viðskiptunum öðlist Icelandair aðgang að viðbótarflugrekstrarleyfi innan Evrópu sem muni auka sveigjanleika félagsins, skapa möguleika til einföldunar og hagræðingar í flugrekstrinum á Íslandi en á sama tíma styðja við áframhaldandi uppbyggingu á alþjóðlegri starfsemi og skapa ný viðskiptatækifæri. Viðskiptin séu hluti af stefnu Icelandair um að auka samkeppnishæfni, fjölbreytni tekjustoða og rekstrarsveigjanleika til lengri tíma.

Samkvæmt kaupsamningi kaupir Icelandair 49 prósenta hlut í FPE og kaupverðið nemi 686 þúsund bandaríkjadölum eða 83,4 milljónum króna. Samhliða viðskiptunum hafi hluthafasamkomulag verið gert, samið um fjármögnun og möguleika Icelandair til að auka eignarhlut sinn í félaginu síðar. Viðskiptin séu meðal annars háð fyrirvara um að samkomulag náist við maltnesk flugmálayfirvöld um áframhaldandi notkun flugrekstrarleyfis FPE.

Viðskiptin hafi óveruleg áhrif á afkomu og efnahag Icelandair á árinu 2026 en feli í sér tækifæri til lengri tíma litið.

„Að eignast hlut í flugrekstrarleyfi á Möltu er fyrst og fremst hugsað til þess að auka sveigjanleika í rekstri, styrkja samkeppnishæfni Icelandair og skapa ný tækifæri – allt til þess að tryggja áframhaldandi uppbyggingu tengimiðstöðvarinnar í Keflavík og þar með störf og öflugt starfsumhverfi í flugrekstri á Íslandi til framtíðar,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×