Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Aron Guðmundsson skrifar 21. ágúst 2026 08:31 Gísli Gottskálk hefur mátt þola margt á sínum stutta atvinnumannaferli til þessa. Mynd: St. Pauli Fótboltamaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson hlaut martraðabyrjun með nýja liði sínu í Þýskalandi og mun nú þurfa að bíða lengi eftir sínum fyrsta leik. Ítrekuð áföll draga hann þó ekki niður, Gísli kýs að svekkja sig ekki á því sem hann getur ekki breytt.
Gísli Gottskálk var á sinni annarri æfingu með þýska B-deildar liðinu St. Pauli á dögunum þegar að hann meiddist illa aftan í læri og þurfti á aðgerð að halda. Framundan eru fjórir til fimm mánuðir á hliðarlínunni. „Ég sem sagt fer yfir til Þýskaland fyrir svona tíu dögum síðan og svo var ég á annarri æfingu minni með liðinu og lendi í meiðslum aftan í læri sem voru mjög alvarleg. Ég þurfti að fara í aðgerð bara næsta dag nánast. Alveg smá sjokk. Ótrúlegt að þetta hafi gerst á æfingu, daginn fyrir fyrsta leik minn með liðinu. Maður er enn að reyna höndla þetta á einhvern hátt. Veit ekki alveg hvað manni á að finnast um þetta.“ Sakleysisleg hælsending dró dilk á eftir sér. „Ég var í rauninni bara að gera hælsendingu á æfingu. Eitthvað sem krefst ekki rosalegrar hreyfingar, tekur alveg á aftan í læri. Ég gerði það og fann eitthvað klikk í lærinu. Vissi að eitthvað hafði gerst. En svo daginn eftir, þegar að ég var að bíða eftir niðurstöðu rannsókna varðandi meiðslin fann ég að það var eitthvað mikið að. Ég gat ekki labbað og hafði ekki mjög góða tilfinningu fyrir þessu.“ Högg og alvöru verkefni Og því miður ekki í fyrsta skipti sem þessu 21 árs gamli leikmaður hefur lent í alvarlegum meiðslum á sínum svo til stutta tíma í atvinnumennsku í Póllandi og nú Þýskalandi. „Dvölin mín í Póllandi byrjaði á svipaðan hátt. Þar meiddist ég tiltölulega snemma. Ég get leitað í þá reynslu. En ógeðslega svekkjandi að lenda í þessu. Þetta eru heldur ekki einhver lítil meiðsli. Þetta er alvöru verkefni þessi meiðsli, aðgerð og allt sem því fylgir. Þetta er högg en maður þarf bara að taka því og halda áfram. Ekkert mikið annað sem hægt er að gera. En ég held ég að allir sem hafa verið í íþróttum, eða upplifað meiðsli aftan í læri, viti að það eru mjög hættuleg meiðsli. Því það eru miklar líkur á að þau taki sig upp aftur og aftur. Auðvitað, með því að fara í aðgerð, þá ertu alveg að auka líkurnar á að þetta verði allt í lagi. Þá þarftu bara að sinna endurhæfingunni vel í kjölfarið.“ Gísli í leik með Lech PoznanVísir/EPA Vildi vera á fram í Hamborg Lánsamningur Gísla hjá St.Pauli inniheldur kaupákvæði og fann hann strax fyrir miklum stuðningi frá forráðamönnum félagsins. „Það held ég að sé það eina jákvæða sem ég hef tekið úr þessari stöðu hingað til. Auðvitað gerist þetta eftir tvær æfingar, í raun hlægilegt hvað þetta gerist snemma. Hvað tímasetningin er óheppileg. Ég var náttúrulega miður mín yfir þessu. Að vera kominn í nýtt lið og geta ekki lagt mitt af mörkum strax. Ég bara fór beint inn á skrifstofu og átti góð samtöl við mennina sem ráða hér. Ég fann það strax samdægurs og við vissum hver staðan væri að það var aldrei neitt annað í huga hjá þeim en að standa hundrað prósent við bakið á mér. Þeir sögðu við mig: „Við fengum þig til liðsins af ástæðu. Sú ástæða breyttist ekkert þó þú sért meiddur.“ Þeir eru bara hundrað prósent á bak við mig og í raun var það bara í mínum höndum hvernig ég vildi hátta endurhæfingunni. Eftir að ég sá hvernig þeir tóku í þetta og hvernig þeir stóðu við bakið á mér þá vildi ég bara vera áfram hérna í Hamborg með liðinu. Klára þetta með þeim og vera klár í seinni part tímabilsins.“ Sieh dir diesen Beitrag auf Instagram an Ein Beitrag geteilt von FC St. Pauli (@fcstpauli) Það mikilvægasta sem íþróttamaður getur fundið fyrir sé trú og traust í svona stöðu. „Auðvitað er þetta náttúrulega þreytt fyrir þá. Að fá til sín leikmann sem meiðist strax. En þeir sögðu mér það alveg frá fyrstu stundu, af því að mér leið náttúrulega illa fyrir þeirra hönd, að það átti sig allir á því að þetta sé verst fyrir mig. Að mér líði verst með þetta. Það er í raun bara tímasetningin sem hafði áhrif á að þetta samtal þurfti að eiga sér stað. Meiðsli eru allt of stór partur af íþróttum. Eiga sér stað á hverjum degi. Menn detta út hægri – vinstri. Það fara allir í gegnum einhverja meiðslakafla en tímasetningin á þessu var það versta. Ekki það sem ég hefði kosið fyrir fram.“ Ein regla: Ekki vorkenna sjálfum þér Hugarfar Gísla er aðdáunarvert. Þrátt fyrir ítrekuð áföll og eða eiga fullan rétt á því að finnast sín staða ósanngjörn svekkir hann sig ekki á því sem hann getur ekki breytt. „Ég held að það besta fyrir mig núna sé að hugsa að ég sé bara tuttugu og eins árs. Það er nóg eftir. Það þýðir ekkert að fara vorkenna sér eitthvað. Auðvitað er það alveg erfitt að fá svona reglulegan skell. Að mínu mati hef ég fengið svona skell aðeins of oft síðan að ferillinn minn hófst. Ekkert eitthvað lítil meiðsli, heldur alvöru meiðsli. Þurft að fara í tvær aðgerðir. Það er alveg þreytt og erfitt og allt það. En ég reyni að setja mér þá reglu að detta aldrei í að fara vorkenna mér.“ Gísli varð tvöfaldur meistari með Víkingi Reykjavík árið 2023 og bikarmeistari 2022 áður en leið hans átti eftir að liggja út í atvinnumennskuna.Vísir/Hulda Margrét „Ég er í mikilli forréttindastöðu. Ég er atvinnumaður í fótbolta sem var draumurinn minn. Ég áttaði mig alveg á því þegar að ég fór til Póllands og þannig að þetta er hluti af þessu. Gerist kannski oftar hjá sumum heldur en öðrum. Það er búið að vera dálítið mikið af því hjá mér síðustu ár en ekkert sem ég get gert í því annað en að reyna koma mér aftur inn á völlinn. Reyna mitt besta til að halda mér heilum. Þetta hefur verið erfitt á tímum, þetta kannski stærsta sjokkið þegar að ég tek tímasetninguna og allt með í myndina. En ekki fara að vorkenna sér. Svo verða fjórir mánuðir liðnir eftir enga stund. Þá er maður byrjaður að spila aftur og þetta þá í reynslubankanum.“ Brot úr viðtalinu við Gísla Gottskálk má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Þýski boltinn Pólski boltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Fleiri fréttir Liverpool - Brighton | Heldur óvænt gengi Brighton áfram? Manchester United - Bournemouth | Heldur martröðin áfram? Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Nýbúin að vera valin best á Íslandi og skoraði tvö mörk í Svíþjóð Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“