Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið Árni Sæberg skrifar 20. ágúst 2026 15:53 Gabríela Bryndís Ernudóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Dr. Anna Ragna Fossberg, Aldís Schram, Jenný Kristín Valberg og Elín Hirst taka til máls á málþingi um mál Ólafs Skúlasonar biskups. Vísir Kvenréttindafélag Íslands, Bjarkarhlíð, Kvennaathvarfið, Líf án ofbeldis, Stígamót og Vitund standa fyrir málþingi í kjölfar þáttaraðarinnar Biskupsmálið eftir Gabríelu Bryndísi Ernudóttur sálfræðing klukkan 17. Málþingið má sjá í beinni útsendingu á Vísi.
Í tilkynningu um málþingið segir að í þáttaröðinni hafi verið fjallað um vald og ábyrgð, hvernig valdamikill maður og embætti hans hafi notið verndar á meðan konur sem sögðu frá kynferðisofbeldi hafi ítrekað þurft að verja frásagnir sínar og trúverðugleika. Jafnframt hafi verið sýnt hvernig afleiðingar kynferðisofbeldis, þöggunar og viðbragða stofnana geti varað áratugum saman og haft áhrif langt út fyrir líf þeirra sem urðu sjálfar fyrir ofbeldinu. „Á málþinginu verður spurt: Hvar stöndum við í dag? Hvað hefur breyst í viðbrögðum samfélagsins við kynferðisofbeldi — og hvað þarf enn að bæta?“ Málþingið hefst klukkan 17 í samkomusalnum að Hallveigarstöðum. Dagskrá þess er eftirfarandi: Fundarsetning: Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar Framsaga: Gabríela Bryndís Ernudóttir, sálfræðingur og höfundur þáttaraðarinn um Biskupsmálið. Upplestur: Guðrún Ebba Ólafsdóttir, kennari og baráttukona les úr bók sinni Ekki líta undan sem kom út 2011. Dr. Anna Ragna Fossberg, rithöfundur og næringarfræðingur, les úr bók sinni Hirðfíflið sem kom út árið 2025. Aldís Schram, lögfræðingur, leikkona og höfundur, fer með frumsamið ljóð. Pallborðsumræður: Gabríela Bryndís Ernudóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, Dr. Anna Ragna Fossberg, Aldís Schram, Jenný Kristín Valberg. Fundar- og pallborðsstjóri er Elín Hirst, fjölmiðlakona og höfundur bókarinnar Ekki líta undan – saga Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur. Málþingið má sjá í spilaranum hér að neðan: Málþing um kynferðisofbeldi og samfélag sem bregst
Kynferðisofbeldi Þjóðkirkjan Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira