Erlent

Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli

Samúel Karl Ólason skrifar
Rúmenar notuðu F-16 herþotu til að sprengja drónann í loft upp.
Rúmenar notuðu F-16 herþotu til að sprengja drónann í loft upp. EPA/ROBERT GHEMENT

Ráðamenn í Rúmeníu sendu í morgun F-16 orrustuþotu til að granda drónabát sem sást í nokkur hundruð metra fjarlægð frá mikilvægum borpalli á Svartahafi. Rúmenar kenna Rússum um atvikið, sem Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir lið í blönduðum hernaði.

Borpallurinn kallast Neptun Deep og á að dæla jarðgasi úr botni Svartahafs. Þegar hann verður tekinn í notkun á næsta ári er búist við því að Rúmenía verði stærsti jarðgasframleiðandi Evrópusambandsins.

Rúmenía deilir meira en sex hundruð kílómetra landamærum með Úkraínu og drónar og tundurdufl hafa ratað inn á yfirráðasvæði þeirra. Í síðasta mánuði sprengdu hermenn tvo sjálfsprengidróna sem fundust fljótandi nærri Neptun Deep.

Myndband náðist af því þegar dróninn var sprengdur með herþotu í morgun.

Úkraínskir stjórnendur dróna, bæði í lofti og á legi, hafa misst samband við þá vegna rafrænna truflana og þeir hafa farið af leið og jafnvel inn í önnur Evrópuríki. Það hafa rússneskir drónar einnig ítrekað gert.

Ekki hefur verið sagt hverjir áttu drónann við borpallinn en Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, segir Rússa bera ábyrgðina. Í yfirlýsingu, sem Reuters vitnar í, sagðist forsetinn fordæma allar tegundir ögrunar sem þessarar af hálfu Rússa.

Ursula von der Leyen tjáði sig einnig um atvikið í morgun. Hún nefndi ekki Rússland en sagði að herferð ógnana sem beindist gegn ESB og samstöðu þar ætti sér stað. Um svokallaðan blandaðan hernað væri að ræða.

Þá sagði hún að verið væri að auka framleiðslu hergagna í Evrópu svo hægt væri að verjast fjölþátta ógnum hart og örugglega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×