Verstappen skrifaði undir nýjan samning Aron Guðmundsson skrifar 20. ágúst 2026 09:07 Verstappen hefur fjórum sinnum á sínum ökuþórsferli í Formúlu 1 orðið heimsmeistari Getty/Mark Thompson Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen hefur kveðið niður orðróm þess efnis að hann sé að fara yfirgefa mótaröðina með því að skrifa undir nýjan langtímasamning til ársins 2030 við Red Bull Racing liðið.
Tíðindin bárust núna í morgun fyrir komandi keppnishelgi Formúlu 1 á heimavelli Verstappen í Hollandi en þetta verður í síðasta skipti í bili sem keppt verður á Zandvoort brautinni þar í landi í bili. Mikið hefur verið rætt um framtíð Verstappen, sem er einn allra besti ökuþór Formúlu 1 mótaraðarinnar frá upphafi, upp á síðkastið og voru einhverjir sem gerðust svo djarfir að halda því fram að Verstappen væri að fá leið á Formúlu 1 og myndi brátt róa á önnur mið. Með því að skrifa undir þennan nýja samning við Red Bull til ársins 2030 hefur Verstappen hins vegar sýnt fram á vilja sinn að sækja í áttina að fleiri heimsmeistaratitlum næstu árin. Hollendingurinn var ekki parsáttur með þær stóru breytingar sem var farið í á regluverki mótaraðarinnar fyrir yfirstandandi tímabil. BREAKING: Max Verstappen will remain at Red Bull Racing until the end of 2030#F1 pic.twitter.com/inHmW3dEJJ— Formula 1 (@F1) August 20, 2026 Verstappen verður 33 ára þegar að nýji samningur hans rennur sitt skeið árið 2030. „Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir þessa framlengingu á mínum samningi. Við erum með besta fólkið í okkar liði og ég er spenntur fyrir því að halda samstarfinu áfram með það að markmiði að komast á toppinn í mótaröðinni á nýjan leik,“ segir Verstappen. Hann er sjötti í stigakeppni ökuþóra sem stendur og er 110 stigum á eftir forystusauðnum Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes. „Ég hef alltaf sagt það. Red Bull Racing fjölskyldan er eins og mín önnur fjölskylda. Hér líður mér eins og heima hjá mér.“ Inbox (1) 🦁 pic.twitter.com/pIywH7fCoe— Oracle Red Bull Racing (@redbullracing) August 20, 2026 Með þessum tíðindum þykir nokkuð ljóst að litlar sem engar breytingar verða á ökumannsskipan efstu liðanna í Formúlu 1 á næsta tímabili. Ferrari, Mercedes, McLaren og Red Bull Racing eru nær öll búin að ganga frá sínum málum hvað það varðar. Verstappen hefur verið ökuþór Red Bull samsteypunnar frá því að hann hóf sinn feril í Formúlu 1 árið 2014. Fyrst hjá systurliðinu Toro Rosso en seinna meir hjá Red Bull Racing þar sem að hann hefur slegið í gegn. Hollendingurinn fór fyrir liðinu á frábæru tímabili þess frá árinu 2021 til 2024 þegar að Verstappen vann fjóra heimsmeistaratitla í röð. Hann er nú í sókn á eftir þeim fimmta.
Akstursíþróttir Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Norris kom sér aftur á sigurbraut Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Sjá meira