Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Sindri Sverrisson skrifar 20. ágúst 2026 09:01 Þrátt fyrir martröðina sem Frida Karlsson hefur þurft að glíma við hefur henni gengið allt í hag í snjónum. Hún vann tvenn ólympíugull í febrúar. Getty/Alex Slitz Þrátt fyrir nálgunarbann og fyrri dóm hefur sænska skíðadrottningin Frida Karlsson ekki fengið frið fyrir eltihrelli sem nú hefur verið ákærður í annað sinn fyrir að ofsækja tvöfalda ólympíumeistarann.
Eltihrellirinn, sem er 66 ára gamall karlmaður, var dæmdur vorið 2025 eftir að hafa til að mynda sent skíðagöngustjörnunni bréf, fjölda skilaboða, reynt að hringja í hana yfir 200 sinnum og beðið fyrir utan heimili hennar. Hann hlaut tveggja ára skilorðsbundinn dóm í Ångermanland dómstólnum i Svíþjóð, og þurfti því ekkert að sitja inni, og var gert að greiða jafnvirði rúmlega hálfrar milljónar íslenskra króna í sekt. Eftir dóminn, sem reyndar var áfrýjað, og þrátt fyrir nálgunarbann, hefur maðurinn hins vegar haldið áfram að hrella Karlsson. Í september í fyrra byrjaði hann að nýju að senda símaskilaboð, hringja og senda skilaboð í gegnum Instagram. Ofsóknirnar komu þó ekki í veg fyrir að Frida Karlsson ætti stórkostlega Vetrarólympíuleika á Ítalíu í febrúar, þar sem hún vann tvenn ólympíugullverðlaun. Það er ekki aðeins hin 27 ára gamla Frida sem þurft hefur að glíma við þessar ofsóknir heldur hefur maðurinn einnig haft samband við Miu, móður hennar. Hann hefur nú verið ákærður að nýju. „Okkur fannst nauðsynlegt að tilkynna það þegar þetta fór að gerast aftur,“ sagði móðirinn Mia Karlsson við Expressen. Hún er stolt af því hvernig dóttir hennar hefur höndlað þessa martröð. „Mér finnst hún hafa staðið sig vel. Hún er aðallega hrædd við ferlið, því það er ótrúlega erfitt að fara í gegnum allt lagaferlið,“ sagði Mia Karlsson.
Skíðaíþróttir Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fleiri fréttir Harðvígar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Enskt hlaðborð á laugardegi Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Sjá meira