Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar 20. ágúst 2026 08:17 Ég vil stöðugra efnahagssvæði með upptöku evru. Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með þeim heljarstökkum sem íslenskt efnahagslíf hefur þurft að taka til þess að halda úti eigin gjaldmiðli. Við höfum að mörgu leyti getað varið okkur gegn efnahagsáföllum með krónunni en mögulega þurfum við frekar að horfa á orsakir. Krónan er ekki vörnin gegn vandanum, hún er vandinn sjálfur. Ég er eindreginn stuðningsmaður frjálsra viðskipta og hef ávallt talað fyrir því að greiða eigi leið þeirra. Á sama tíma erum við nú að sjá tolla rísa víða um heim og í slíku umhverfi eru það litlar þjóðir eins og Ísland sem eiga hvað mest á hættu að verða undir. Sem innflutningsháð þjóð eigum við mikið undir því að alþjóðaviðskipti haldist eins frjáls og mögulegt er. Besta leiðin til þess er að tryggja okkur óheftan og tollfrían aðgang að innri markaði Evrópusambandsins. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við að taka upp reglur sem við höfum ekkert um að segja. Það er erfitt að horfa upp á það gífurlega magn af reglum sem eru innleiddar hér á landi án þess að við fáum að kjósa þá fulltrúa sem setja þær. Við þurfum að hafa raunveruleg áhrif á þær ákvarðanir sem hafa bein áhrif á líf okkar og samfélag. Þetta eru hlutir sem myndu vafalaust gerast við inngöngu Íslands inn í Evrópusambandið og með upptöku evru. Mig langar að sjá hvernig samningurinn í heild sinni myndi vera svo ég get tekið heildstæða afstöðu til þess hvort að ég segi Já í seinna skiptið. Þess vegna segi ég Já 29. ágúst. Höfundur er formaður Uppreisnar - Ungliðahreyfingar Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Sjá meira
Ég vil stöðugra efnahagssvæði með upptöku evru. Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með þeim heljarstökkum sem íslenskt efnahagslíf hefur þurft að taka til þess að halda úti eigin gjaldmiðli. Við höfum að mörgu leyti getað varið okkur gegn efnahagsáföllum með krónunni en mögulega þurfum við frekar að horfa á orsakir. Krónan er ekki vörnin gegn vandanum, hún er vandinn sjálfur. Ég er eindreginn stuðningsmaður frjálsra viðskipta og hef ávallt talað fyrir því að greiða eigi leið þeirra. Á sama tíma erum við nú að sjá tolla rísa víða um heim og í slíku umhverfi eru það litlar þjóðir eins og Ísland sem eiga hvað mest á hættu að verða undir. Sem innflutningsháð þjóð eigum við mikið undir því að alþjóðaviðskipti haldist eins frjáls og mögulegt er. Besta leiðin til þess er að tryggja okkur óheftan og tollfrían aðgang að innri markaði Evrópusambandsins. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við að taka upp reglur sem við höfum ekkert um að segja. Það er erfitt að horfa upp á það gífurlega magn af reglum sem eru innleiddar hér á landi án þess að við fáum að kjósa þá fulltrúa sem setja þær. Við þurfum að hafa raunveruleg áhrif á þær ákvarðanir sem hafa bein áhrif á líf okkar og samfélag. Þetta eru hlutir sem myndu vafalaust gerast við inngöngu Íslands inn í Evrópusambandið og með upptöku evru. Mig langar að sjá hvernig samningurinn í heild sinni myndi vera svo ég get tekið heildstæða afstöðu til þess hvort að ég segi Já í seinna skiptið. Þess vegna segi ég Já 29. ágúst. Höfundur er formaður Uppreisnar - Ungliðahreyfingar Viðreisnar.
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar