Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Freyja Þórisdóttir skrifar 19. ágúst 2026 12:36 Jinny Lu hafði verið skráð til keppni þrisvar þegar hún keppti og vann í sinni fjórðu „Ljótasti hundurinn“-keppni. Í verðlaun hlaut hún pening, bikar og godrykkjasamstarf. AP Keppni um ljótasta hund heims fór fram í fimmtugasta skipti í ár en pug-hundurinn Jimmy Lu, sem er sex ára gömul, hreppti hnossið í ár. Hún hafnaði í öðru sæti í fyrra en þetta var í fjórða skipti sem hún var meðal keppenda. Skipuleggjendur hafa sagt raunverulegan tilgang keppninnar vera að hvetja fólk til að ættleiða gæludýr frekar en að kaupa.
Keppendur voru alls níu talsins í ár en keppnin fór fram í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Í staðarmiðlinum NBC Bay Area er sagt frá því að Jinny Lu, ásamt eiganda sínum Michelle Grady, hafi farið heim með bikar og fimm þúsund dollara, eða um sex hundruð þúsund íslenskar krónur, í verðlaun. MUG Root Beer, einn af styrktaraðilum keppninnar, muni einnig framleiða takmarkað upplag af gosdósum með andliti Jinny Lu á. Tíður gestur í grunnskólum Sá sem lenti í öðru sæti í ár, Pinky, sem er blanda af chihuahua og pomeranian, fór heim með þrjú þúsund dollara í verðlaun, eða um þrjú hundruð og sjötíu þúsund íslenskar krónur, sá sem rataði í þriðja sæti keppninnar, chihuahua-blandan Otto, fékk tvö þúsund dollara í verðlaun, eða um tvö hundruð fjörutíu og fjögur þúsund íslenskar krónur. Í umfjöllun NBC Bay Area kemur fram að sigurvegaranum, Jinny Lu, hafi verið bjargað úr hundakjötsiðnaðinum í Suður-Kóreu en hún var ættleidd fyrir um fjórum árum og býr ásamt eigendum sínum í borginni Ukiah í Kaliforníu-fylki. Hún er tíður gestur á hjúkrunarheimilum fyrir fólk með heilabilanir sem og í grunnskólum þar sem hún vekur oft mikla lukku, er fram kemur í umfjölluninni. Hér fyrir neðan má líta þá fjölbreyttu hunda sem voru taldir einstaklega ljótir af eigendum sínum eða þá þeim sem skráðu þá til leiks: Hundurinn Ottó stóð sig með prýði í keppninni en eigandi hans er Melinda Berry. Munnsvipur Ottós var talinn einkar ljótur.AP Hin sjö ára gamla Poppy skartaði sínu fegursta bleiklitaða pússi á keppninni í stíl við hjartalaga nafnmerki.AP Pinky var sem fyrr segir í þriðja sæti en athygli vekur að langflestir, ef ekki allir, hundarnir sem kepptu um titilinn eru smáhundar. Pinky var reyndar sá eini sem er albínói: alveg án litarefnisins melaníns í húð, hári og augum.AP Jinny Lu var hoppandi kát með sigurinn en það var engin hundaheppni að hún vann heldur var það mat þriggja manna dómnefndar að hún væri ófríðust keppenda.AP Mikið margmenni hafði safnast saman við rauða hundadregilinn til að fylgjast með keppendum trítla inn á keppnisvettvanginn.AP Keppendurnir voru ekki einu lukkudýrin, það voru nokkrir tvífætlingar fengnir til að vappa um með gríðarstórar hundagrímur, áhorfendum eflaust til mikillar gleði.AP Það er svipur með þessum en það var aðeins annar þeirra sem lenti á palli.AP Hundurinn Little Prince er svon sannarlega litli prinsinn hans pabba síns, Christopher Wonder, en það er fallegt að sjá hversu mikil aðdáun skín úr augum eigandans á þessari mynd.AP Það má nánast gefa sér það að hin tólf ára gamla Clara hafi lagt á sig lengsta ferðalagið til þess að taka þátt í keppninni en hún ferðaðist til Kaliforníu frá Póllandi. Það er spurning hvort hún endurtaki leikinn að ári þrátt fyrir slakan árangur og háan aldur.AP
Bandaríkin Hundar Fegurðarsamkeppnir Mest lesið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið South Park verður South America Lífið Kappsmál sett á ís Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Fleiri fréttir South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Sjá meira