Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 19. ágúst 2026 08:15 Þegar rætt er um stóru hugtökin í efnahagsmálum, evruna, innri markaðinn og Evrópusambandið, vill hið einfalda og mikilvæga oft gleymast í fjaðrafoki stjórnmálanna: Hvað skiptir fólk raunverulega máli? Fyrir venjuleg íslensk heimili snýst þetta mál nefnilega ekki um háfleyga hugmyndafræði eða einhverja meinta skriffinnsku í Brussel, heldur um tvo mjög áþreifanlega þætti í daglegu lífi: Vaxtastig og fyrirsjáanleika. Vegna þess að við höldum úti okkar eigin litlu gjaldeyrisskútu á úthafinu neyðist Seðlabankinn til að halda stýrivöxtum miklu hærri en nágrannaþjóðirnar búa við til að reyna að stemma stigu við verðbólgunni. Til að verja krónuna þarf ríkið auk þess að liggja á gríðarstórum gjaldeyrisvaraforða með himinháum vaxtakostnaði, sem betur væri varið í mikilvæga innviði samfélagsins. Útreikningar sýna að hvert einasta prósentustig í vaxtamun á milli Íslands og evrusvæðisins kostar samfélagið okkar um 120 milljarða króna á ári í hreinan aukakostnað (þetta eru heimilin, fyrirtækin, sveitarfélögin, ríkið o.s.frv.). Fyrir venjulega fjölskyldu myndi það að færast nær evrópsku vaxtastigi þýða tugi eða jafnvel yfir hundrað þúsund krónur í hreinan mánaðarlegan sparnað af húsnæðislánunum. Þetta er raunveruleg og varanleg kjarabót sem hefðbundnir kjarasamningar geta ekki skilað. Með upptöku evru yrði verðtrygging á nýjum lánum einfaldlega óþörf. Um leið skapast tækifæri til að kveðja jafngreiðslulánin fyrir fullt og allt og ganga inn í lánaumhverfi þar sem fólk upplifir þá sjálfsögðu tilfinningu að sjá höfuðstól lánanna sinna raunverulega lækka við hverja innborgun. Ávinningurinn einskorðast þó ekki við heimilin. Íslenskur landbúnaður er gríðarlega fjármagnsfrekur og einstakir bændur standa í tugmilljóna fjárfestingum í tækjum, bústofni og húsnæði. Lægra vaxtastig myndi létta á rekstrargrundvelli búanna, auk þess sem reynsla landa eins og Svíþjóðar og Finnlands sýnir að hægt er að semja um sérstaka styrki til bænda á norðlægum slóðum. Á sama hátt myndu smærri fyrirtæki, sem eru burðarás atvinnulífsins, loksins búa við sömu hagstæðu rekstrarskilyrði og stóru útflutningsfyrirtækin, sem gera nú þegar upp í evrum og taka lán á evrópskum kjörum. Það er líka hollt að horfa á þessa stöðu með opnum augum þegar rætt er um fullveldið. Í gegnum EES-samninginn höfum við þegar tekið upp stóran hluta af regluverki Evrópusambandsins, allt frá matvælalöggjöf til lyfja- og flugöryggismála, en án þess að hafa nokkurn aðkomurétt þegar reglurnar eru samdar. Með því að standa fyrir utan erum við í raun að fylgja leikreglum annarra án þess að hafa rödd. Aðildarviðræður snúast ekki um að samþykkja neitt í blindni. Það snýst einfaldlega um að fá svörin og samninginn á borðið, semja af alvöru um okkar sérstöku hagsmuni, eins og sjálfbæra nýtingu fiskimiðanna og landbúnaðarmál, sem og að tryggja Íslandi sæti við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Að velja þá leið er ekki veikleikamerki. Það er möguleg framtíðarsýn og rökrétt ákvörðun um að sjá hvort við getum fært íslenskum heimilum og atvinnulífi sama öryggi, sama vaxtastig og sömu sjálfsögðu lífskjör og nágrannaþjóðir okkar hafa notið um áratugaskeið. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um Já við ESB-viðræðum . Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun