Alveg viss um að NFL muni hafa lið utan Bandaríkjanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2026 16:15 Roger Goodell segir að NFL-deildin muni auka alþjóðleg umsvif sín á næstu árum. epa/CHRIS TORRES Roger Goodell, yfirmaður NFL, er ekki í vafa um að í framtíðinni verði lið í deildinni sem er ekki með aðsetur í Bandaríkjunum.
NFL hefur verið að færa út kvíarnar og nema ný lönd á undanförnum árum. Frá og með tímabilinu 2027 verða tíu NFL-leikir utan Bandaríkjanna en á komandi tímabili verða þeir níu. Goodell ræddi um alþjóðlegan vöxt NFL í nýlegu viðtali við RTL í Þýskalandi. „Á einhverjum tímapunkti verða NFL-lið utan Bandaríkjanna. Ég efast ekki um að það muni gerast einn daginn,“ sagði Goodell. Rætt hefur verið um að sjálfur Super Bowl muni einhvern tímann fara fram á erlendri grundu. Í viðtalinu við RTL sagði Goodell að fyrst yrði NFL-lið staðsett utan Bandaríkjanna áður en Super Bowl færi fram á erlendri grundu. „Það eru klárlega alþjóðlegar borgir sem gætu haldið eitthvað slíkt. En við viljum fyrst sjá NFL-lið í slíkri borg,“ sagði Goodell. Á næsta tímabili fara þrír leikir í NFL fram í London og einn í Melbourne, Ríó de Janeiro, París, Madríd, München og Mexíkó-borg. NFL-tímabilið 2026 hefst með leik meistara Seattle Seahawks og New England Patriots 9. september næstkomandi.
NFL Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir KR - Breiðablik | Slær Aron markametið? ÍA - Keflavík | Geta náð besta árangri í mörg ár FH - Þór | Ævintýri Þórsara fullkomnað? KA - ÍBV | Taka gestirnir KA-menn með sér niður? Stjarnan - Valur | Kveðjustund í Garðabæ Emelía skoraði tvennu í mikilvægum sigri Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Aston Villa - Manchester City | Missa gestirnir loksins stig? Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi „Þetta er bara ólýsanlegt” Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Sjá meira